Winter Wonderland 24. nóvember 2024

BOB og BIS-4 NORDICCh ISCh ISJCh ISW-23 RW-24 Bonitos Companeros Mr. Spock

Winter Wonderland & Ísland Winner sýning HRFÍ var haldin í reiðhöll Spretts í Kópavogi 23.-24. nóvember. Sýndir voru samtals 51 cavalier hundar; 7 hvolpar, 19 rakkar og 25 tíkur, auk þriggja ræktunarhópa. Dómari var Veli-Pekka Kumpumäki frá Finnlandi og Dýrabær gaf verðlaun.

Þó dómarnir innan tegundarinnar hafi verið mismunandi, nokkuð margir Very good og fjórir Disqualified sem sjaldan er gripið til, þá batnaði dagurinn heldur betur þegar á leið! Við áttum fulltrúa í úrtaki og/eða toppsætum í öllum úrslitum dagsins en þau eru nánar útlistuð hér að neðan. Cavalier hundar hafa aldrei náð eins góðum heildarárangri í úrslitum áður, stórkostlegur endir á sýningaárinu fyrir tegundina okkar.

Besti hundur tegundar var NORDICCh ISCh ISJCh ISW-23 RW-24 Bonitos Companeros Mr. Spock og besta tík ISJCh RW-23-24 ISJW-23 Elixir D’Amour-Bl The Enchanting Dreamcatchers, bæði fengu þau titilinn Ísland Winner (ISW-24) og Crufts Qualification. Mr. Spock rúllaði síðan upp keppni í tegundahópi 9 og ekki nóg með það heldur endaði hann sem fjórði besti hundur sýningar af rúmlega 1.000 hundum, stórglæsilegur árangur! Cavalier hefur ekki oft unnið grúppu 9 í gegnum tíðina og ennþá sjaldan náð sæti í keppni um besta hund sýningar, en það gerðist síðast í febrúar 2011 þegar C.I.B. ISCh Drauma Abraham varð annar besti hundur sýningar.

Íslensku og Norðurlandameistarastigin gengu niður til Cavalion Blues Brothers og Hafnarfjalls Selmu Karlottu sem urðu í 2. sæti í keppni um besta rakka og bestu tík tegundar. Cavalion Blues Brothers var að fá sitt þriðja íslenska stig og verður því íslenskur meistari.

Besti ungliði tegundar var Mjallar Garpur og besta ungliðatík Seljudals Ósk, bæði með íslenskt og Norðurlanda-ungliðameistarastig, einnig titilinn Ísland Junior Winner (ISJW-24). Mjallar Garpur varð síðan í 3. sæti í úrslitum ungliða í tegundahópi 9.

Besti hvolpur 4-6 mánaða var Esju Nætur Viktoría og besti rakki í sama aldursflokki Mjallar Gotti Cosmo. Viktoría gerði sér svo lítið fyrir og varð besti hvolpur dagsins af öllum tegundum. Besti hvolpur 6-9 mánaða var Snjallar Tjaldur og landaði hann 4. sætinu í úrslitum allra tegunda. Heldur betur góð byrjun á sýningaferli þeirra. Besti öldungur tegundar var ISCh ISVetCh RW-17-21 Ljúflings Merlin Logi með Norðurlanda-öldungameistarstig og titilinn ISVW-24, hann náði svo í 7 hunda úrtak í úrslitum.

Besti ræktunarhópur tegundar kom frá Hafnarfjalls ræktun og enn og aftur gerði tegundin okkar það gott í úrslitum, besti ræktunarhópur dagsins af samtals 12 hópum. Þessi sýning mun seint gleymast og verður gaman að sjá hvað næsta sýningaár ber í skauti sér.

Ítarlegri úrslit að neðan:

Hvolpaflokkur 4-6 mánaða

Rakkar (2-1)

  1. sæti SL Mjallar Gotti Cosmo, eig. og rækt. Arna Sif Kærnested

Tíkur (4)

  1. sæti SL Esju Nætur Viktoría, eig. og rækt. Svanhvít Dröfn Sæmundsdóttir
  2. sæti SL Mjallar Gyðja Mánadís, rækt. Arna Sif Kærnested
  3. sæti SL Hafnarfjalls Elsu Emma, eig. og rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann

Hvolpaflokkur 6-9 mánaða

Rakkar (1)

  1. sæti SL Snjallar Tjaldur, eig. og rækt. Steinunn Rán Helgadóttir

13 rakkar fengu Excellent, 5 Very good og 1 Disqualified.

Ungliðaflokkur (4)

  1. sæti ex.ck. jun.cert. n-jcac. Mjallar Garpur, eig. Laufey Guðjónsdóttir, rækt. Arna Sif Kærnested
  2. sæti ex.ck. Gasekær’s Tro på drømme Rockey, rækt. Anni Harboe Sørensen
  3. sæti vg. Hafnarfjalls Birtu Mói, eig. Hermann Rafn Guðmundsson, rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann
  4. sæti vg. Hafnarfjalls Karlottu Ottó Logi, rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann

Unghundaflokkur (1)

  1. sæti vg. Esju Dare To Dream James Bond, eig. og rækt. Svanhvít Dröfn Sæmundsdóttir

Opinn flokkur (11)

  1. sæti ex.ck. Cavalion Blues Brothers, eig. Anna Þórðardóttir Bachmann og Svanhvít Dröfn Sæmundsdóttir, rækt. Agnieszka Sndrearczyk Wozniakowska
  2. sæti ex.ck. Hafnarfjalls Karlottu Tómas, eig. Berglind Guðmundsdóttir, rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann
  3. sæti ex. Navenda’s Charm of diamonds, eig. Guðríður Vestars, rækt. Helen Eikeland
  4. sæti ex. Eldlukku Vetrar Snjór, eig. Guðbjörg Björnsdóttir, rækt. Svanborg S. Magnúsdóttir

Meistaraflokkur (2)

  1. sæti ex.ck. NORDICCh ISCh ISJCh ISW-23 RW-24 Bonitos Companeros Mr. Spock, eig. Arna Sif Kærnested og Anna Þórðardóttir Bachmann, rækt. Markus Kirschbaum
  2. sæti ex.ck. ISCh ISJCh RW-23 ISJW-23 Eros The Enchanting Dreamcatchers, eig. Guðríður Vestars, rækt. Giusy Pellegrini

Öldungaflokkur (1)

  1. sæti ex.ck. vet.cert. n-vcac. ISCh ISVetCh RW-17-21 Ljúflings Merlin Logi, eig. Rúnar Már Sverrisson og Guðbjörg Björnsdóttir, rækt. María Tómasdóttir

Úrslit bestu rakkar

  1. NORDICCh ISCh ISJCh ISW-23 RW-24 Bonitos Companeros Mr. Spock – BOB, NCAC
  2. Cavalion Blues Brothers – CERT, R.NCAC
  3. Hafnarfjalls Karlottu Tómas
  4. Mjallar Garpur – Jun.CERT N-JCAC

13 tíkur fengu Excellent, 9 fengu Very Good og 3 Disqualified.

Ungliðaflokkur (8)

  1. sæti ex.ck. jun.cert. n-jcac. Seljudals Ósk, eig. og rækt. Halldóra Bergsdóttir og Björn Angantýr Ingimarsson
  2. sæti ex. Mjallar Gná, eig. og rækt. Arna Sif Kærnested
  3. sæti ex. Hafnarfjalls Karlottu Ísabella, rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann
  4. sæti vg. Mjallar Glóð Esja, eig. og rækt. Arna Sif Kærnested

Unghundaflokkur (7)

  1. sæti ex.ck. ISJCh Eldeyjarlilju Bonnie Tyler, eig. Fríða Kristín Albertsdóttir, rækt. Jón Grímsson
  2. sæti vg. Korpu Kolbrúnar Klara, eig. Anna Þórðardóttir Bachmann, rækt. Sigrún Bragadóttir
  3. sæti vg. Þórshamrar Freyju Jasmine, eig. og rækt. Fríða Björk Elíasdóttir
  4. sæti vg. Eldlukku Káta Kilja, eig. og rækt. Svanborg S. Magnúsdóttir

Opinn flokkur (7)

  1. sæti ex.ck. Hafnarfjalls Selmu Karlotta, eig. Bergþóra Linda Húnadóttir, rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann
  2. sæti ex.ck. Hafnarfjalls Karlottu Embla, eig. og rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann
  3. sæti ex.ck. Sóldísar Amý Mandla, eig. Ásdís Birna Bjarkadóttir, rækt. Hafdís Lúðvíksdóttir
  4. sæti ex. Brellu Kviku Sprunga, eig. Sunna Gautadóttir, rækt. Valka Jónsdóttir

Meistaraflokkur (2)

  1. sæti ex.ck. ISJCh RW-23-24 ISJW-23 Elixir D’Amour-Bl The Enchanting Dreamcatchers, eig. Anna Þórðardóttir Bachmann, rækt. Giusy Pellegrini
  2. sæti ex.ck. ISCh ISJCh Snjallar Kastaní Björt á brá, eig. og rækt. Steinunn Rán Helgadóttir

Öldungaflokkur (1)

  1. sæti ex. Þórshamrar Natalia, eig. Fríða Björk Elíasdóttir og Ólöf R. Guðnadóttir, rækt. Fríða Björk Elíasdóttir

Úrslit bestu tíkur

  1. ISJCh RW-23-24 ISJW-23 Elixir D’Amour-Bl The Enchanting Dreamcatchers – BOS, NCAC
  2. Hafnarfjalls Selmu Karlotta – CERT R.NCAC
  3. ISCh ISJCh Snjallar Kastaní Björt á brá
  4. Hafnarfjalls Karlottu Embla

Ræktunarhópar, allir með heiðursverðlaun:

  1. Hafnarfjalls ræktun – Anna Þórðardóttir Bachmann
  2. Mjallar ræktun – Arna Sif Kærnested
  3. Eldlukku ræktun – Svanborg S. Magnúsdóttir

Birt með fyrirvara um villur. Deildin óskar öllum eigendum og ræktendum til hamingju með frábæran árangur.