Deildarsýning 10. maí 2025

BOB og BOS – Snjallar Hrafntinnu Viska og ISCh ISJCh RW-23 ISJW-23 Eros The Enchanting Dreamcatchers

Helgina 10.-11. maí var haldin tvöföld deildarsýning í tilefni 30 ára afmælis Cavalierdeildar, sem var formlega stofnuð þann 14. maí 1995. Sýningin fór fram í húsnæði HRFÍ í Hafnarfirði og var mjög góð skráning báða dagana.

Á laugardeginum voru sýndir 18 hvolpar, 23 rakkar og 33 tíkur, auk þriggja ræktunarhópa, afkvæmahóps og tveggja para. Dómari var Nadja Lafontaine frá Danmörku. Sýningarstjóri og hringstjóri var Sóley Halla Möller, ritarar og utanumhald á verðlaunum Anja Björg Kristinsdóttir og Erla Heiðrún Benediktsdóttir, ljósmyndari Ágúst Elí Ágústsson. Deildin færir þeim allra bestu þakkir fyrir störf sín.

Vinningshafar í hverjum flokki og öll fjögur sætin í keppni um bestu tík og besta rakka fengu rósettur og mjög veglega gjafapoka frá Dýrabæ, sérstakar rósettur voru einnig fyrir BOB og BOS. Bestu hvolpar, ungliðar, besti öldungur, besta tík og rakki fengu bikara og hvolpar fengu þátttökumedalíur, en öll verðlaun voru gefin af Dýrabæ.

BH hönnun sá um skreytingar og Dýrabær styrkti deildina á ýmsan hátt. Ekki er mögulegt að halda svona veglega sýningu og hvað þá tvöfalda, án þess að hafa góðan styrktaraðila og þökkum við Dýrabæ kærlega fyrir gott samstarf.

Besti hundur tegundar og þá einnig besti hundur sýningar á laugardeginum var Snjallar Hrafntinnu Viska með íslenskt meistarastig. Hún fékk auk þess afhentan nýjan farandbikar deildarinnar sem mun framvegis verða notaður á deildarsýningum. Bikarinn hefur fengið nafnið Maríubikar til heiðurs Maríu Tómasdóttur (Ljúflings ræktun), sem flutti fyrstu cavalier hundana til landsins og hóf hér ræktun árið 1993. Gefendur bikarsins eru Rúnar Már Sverrisson og Guðbjörg Björnsdóttir (Ljúflings Ísarr Logi og Ljúflings Merlin Logi). Bestur af gagnstæðu kyni var ISCh ISJCh RW-23 ISJW-23 Eros The Enchanting Dreamcatchers en meistarastigið gekk niður til annars besta rakka, Navenda’s Charm of diamonds.

Besti ungliði var Esju Nætur Viktoría með ungliðameistarastig. Besti öldungur var ISJCh Eldlilju Kastani Coffee og besti öldungarakki ISCh ISVetCh RW-17-21 ISVW-24 Ljúflings Merlin Logi, bæði með öldungameistarastig. Besti hvolpur 3-6 mánaða var Miðkots Tía og besti rakki í sama aldursflokki Mánaljóss Ecco. Besti hvolpur 6-9 mánaða var Eldlukku Netta Blásól.

Besti ræktunarhópur kom frá Mjallar ræktun, besti afkvæmahópur var Hafnarfjalls Selmu Karlotta ásamt afkvæmum og besta parið Esju Dare To Dream James Bond og Esju Nætur Viktoría.

Úrslit í öllum flokkum má sjá hér að neðan:

Hvolpaflokkur 3-6 mánaða

Rakkar (5)

  1. sæti SL Mánaljóss Ecco, rækt. Kristín Bjarnadóttir
  2. sæti SL Miðkots Rommí, eig. Hildur Hrund Hallsdóttir, rækt. Sunna Gautadóttir

Tíkur (8)

  1. sæti SL Miðkots Tía, eig. Sædís Magnúsdóttir og Tómas Guðbjörn Þorgeirsson, rækt. Sunna Gautadóttir
  2. sæti SL Snilldar Úlfu Rökkva, eig. Elín Margrét Helgadóttir og Hafsteinn Þórir Haraldsson, rækt. Matthildur Úlfarsdóttir
  3. sæti SL Mánaljóss Evíta Kría, rækt. Kristín Bjarnadóttir
  4. sæti SL Mánaljóss Ellý Vilhjálms, rækt. Kristín Bjarnadóttir

Hvolpaflokkur 6-9 mánaða

Tíkur (5)

  1. sæti SL Eldlukku Netta Blásól, eig. og rækt. Svanborg S. Magnúsdóttir

15 rakkar fengu Excellent (6 með meistaraefni), 6 fengu Very Good og 2 Good.

Ungliðaflokkur (6-2)

  1. sæti ex. Hafnarfjalls Elsu Garpur, eig. Sólrún Helga Ingibergsdóttir, rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann
  2. sæti ex. Mjallar Geisli, eig. Jón Grímsson, rækt. Arna Sif Kærnested
  3. sæti vg. Granny’s Chips Gentleman, rækt. Castiano Della Presolana
  4. sæti vg. Eldeyjarlilju Tindru Klaki, eig. Konráð Guðmundsson, rækt. Jón Grímsson

Unghundaflokkur (4)

  1. sæti ex.ck. Esju Dare To Dream James Bond, eig. og rækt. Svanhvít Dröfn Sæmundsdóttir
  2. sæti ex.ck. Gasekær’s Tro på drømme Rockey, eig. Kristín Ósk Bergsdóttir, rækt. Anni Harboe Sørensen
  3. sæti ex. Snjallar Hrafntinnu Galdur, eig. Guðrún Ósk Traustadóttir, rækt. Steinunn Rán Helgadóttir
  4. sæti ex. ISJW-24 Mjallar Garpur, eig. Laufey Guðjónsdóttir, rækt. Arna Sif Kærnested

Opinn flokkur (10)

  1. sæti ex.ck. Navenda’s Charm of diamonds, eig. Guðríður Vestars, rækt. Helen Eikeland
  2. sæti ex.ck. Gasekær’s Black Beautiful Gino, eig. Kristín Ósk Bergsdóttir, rækt. Anni Harboe Sørensen
  3. sæti ex. Fiorintino My First, eig. Jón Grímsson, rækt. M. Buss
  4. sæti ex. Hafnarfjalls Karlottu Tómas, eig. Berglind Guðmundsdóttir, rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann

Meistaraflokkur (4)

  1. sæti ex.ck. ISCh ISJCh RW-23 ISJW-23 Eros The Enchanting Dreamcatchers, eig. Guðríður Vestars, rækt. Giusy Pellegrini
  2. sæti ex.ck. ISCh Cavalion Blues Brothers, eig. Anna Þórðardóttir Bachmann og Svanhvít Dröfn Sæmundsdóttir, rækt. Agnieszka Sndrearczyk Wozniakowska
  3. sæti vg. C.I.B. NORDICCh ISCh ISJCh RW-24 ISW-23-24 Bonitos Companeros Mr. Spock, eig. Arna Sif Kærnested og Anna Þórðardóttir Bachmann, rækt. Markus Kirschbaum
  4. sæti vg. CIB NOCH DKCH SECH CIB-J Pecassa’s Mister Power Of Sprudle, eig. Guðríður Vestars, rækt. Nina Ryland Kallekleiv

Öldungaflokkur (1)

  1. sæti ex.ck. vet.cert. ISCh ISVetCh RW-17-21 ISVW-24 Ljúflings Merlin Logi, eig. Rúnar Már Sverrisson og Guðbjörg Björnsdóttir, rækt. María Tómasdóttir

Úrslit bestu rakkar

  1. ISCh ISJCh RW-23 ISJW-23 Eros The Enchanting Dreamcatchers – BOS
  2. Navenda’s Charm of diamonds – CERT
  3. Gasekær’s Black Beautiful Gino
  4. Esju Dare To Dream James Bond

20 tíkur fengu Excellent (7 með meistaraefni) og 13 fengu Very good.

Ungliðaflokkur (8-2)

  1. sæti ex.ck. jun.cert. Esju Nætur Viktoría, eig. og rækt. Svanhvít Dröfn Sæmundsdóttir
  2. sæti ex.ck. Mjallar Gyðja Mánadís, eig. og rækt. Arna Sif Kærnested
  3. sæti ex. Hafnarfjalls Elsu Emma, eig. og rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann
  4. sæti ex. Hafnarfjalls Karlottu Ísabella, eig. og rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann

Unghundaflokkur (8-1)

  1. sæti ex.ck. Snjallar Hrafntinnu Viska, eig. og rækt. Steinunn Rán Helgadóttir
  2. sæti ex.ck. Mjallar Gná, eig. og rækt. Arna Sif Kærnested
  3. sæti ex. ISJW-24 Seljudals Ósk, eig. og rækt. Halldóra Bergsdóttir og Björn Angantýr Ingimarsson
  4. sæti ex. ISJCh Hafnarfjalls Birtu Linda, eig. og rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann

Opinn flokkur (17)

  1. sæti ex.ck. Renesmee Des Precieuses Pierres, eig. Anna Þórðardóttir Bachmann, rækt. Marlene Mile Mouillon
  2. sæti ex.ck. Eldeyjarlilju Jökla, eig. Íris Dögg Gísladóttir, rækt. Jón Grímsson
  3. sæti ex. Totally True Love Femme Fatale, eig. Anna Þórðardóttir Bachmann, rækt. Grah José og Monika Kuplen
  4. sæti ex. Brellu Kviku Sprunga, eig. Sunna Gautadóttir, rækt. Valka Jónsdóttir

Meistaraflokkur (2)

  1. sæti ex. NORDICCh ISCh ISJCh RW-23-24 ISJW-23 ISW-24 Elixir D’Amour-Bl The Enchanting Dreamcatchers, eig. Anna Þórðardóttir Bachmann, rækt. Giusy Pellegrini
  2. sæti ex. ISCh ISJCh Snjallar Kastaní Björt á brá, eig. og rækt. Steinunn Rán Helgadóttir

Öldungaflokkur (1)

  1. sæti ex.ck. vet.cert. ISJCh Eldlilju Kastani Coffee, eig. Steinunn Rán Helgadóttir, rækt. Þórunn Aldís Pétursdóttir

Úrslit bestu tíkur

  1. Snjallar Hrafntinnu Viska – BOB, CERT
  2. Renesmee Des Precieuses Pierres
  3. Mjallar Gná
  4. Eldeyjarlilju Jökla

Ræktunarhópar, allir með heiðursverðlaun:

  1. Mjallar ræktun – Arna Sif Kærnested
  2. Hafnarfjalls ræktun – Anna Þórðardóttir Bachmann
  3. Esju ræktun – Svanhvít Dröfn Sæmundsdóttir

Afkvæmahópur, með heiðursverðlaun:

  1. Hafnarfjalls Selmu Karlotta, eig. Bergþóra Linda Húnadóttir, rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann

Besta parið

  1. Esju Dare To Dream James Bond og Esju Nætur Viktoría, eig. og rækt. Svanhvít Dröfn Sæmundsdóttir
  2. Hafnarfjalls Unu Flóki og Hafnarfjalls Unu Tinna, eig. og rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann

Deildin óskar öllum vinningshöfum og ræktendum innilega til hamingju með árangurinn. Birt með fyrirvara um villur, vinsamlegast látið vita ef einhverjar finnast.