
Helgina 10.-11. maí var haldin tvöföld deildarsýning í tilefni 30 ára afmælis Cavalierdeildar, sem var formlega stofnuð þann 14. maí 1995. Sýningin fór fram í húsnæði HRFÍ í Hafnarfirði og var mjög góð skráning báða dagana.
Á sunnudeginum voru sýndir 17 hvolpar, 23 rakkar og 32 tíkur, auk þriggja ræktunarhópa, afkvæmahóps og tveggja para. Dómari var Miyuki Kotani frá Írlandi. Sýningarstjóri og hringstjóri var Sóley Halla Möller, ritarar og utanumhald á verðlaunum Anja Björg Kristinsdóttir og Erla Heiðrún Benediktsdóttir, ljósmyndari Ágúst Elí Ágústsson. Deildin færir þeim allra bestu þakkir fyrir störf sín.
Vinningshafar í hverjum flokki og öll fjögur sætin í keppni um bestu tík og besta rakka fengu rósettur og mjög veglega gjafapoka frá Dýrabæ, sérstakar rósettur voru einnig fyrir BOB og BOS. Bestu hvolpar, ungliðar, besti öldungur, besta tík og rakki fengu bikara og hvolpar fengu þátttökumedalíur, en öll verðlaun voru gefin af Dýrabæ.
BH hönnun sá um skreytingar og Dýrabær styrkti deildina á ýmsan hátt. Ekki er mögulegt að halda svona veglega sýningu og hvað þá tvöfalda, án þess að hafa góðan styrktaraðila og þökkum við Dýrabæ kærlega fyrir gott samstarf.
Á sunnudeginum fór einnig fram keppni ungra sýnenda sem Brynja Kristín Magnúsdóttir dæmdi. Dýrabær gaf þátttakendum rósettur, gjafapoka og medalíur.
Besti hundur tegundar og þá jafnframt besti hundur sýningar seinni daginn var ISCh ISJCh RW-23 ISJW-23 Eros The Enchanting Dreamcatchers en meistarastigið gekk niður til þriðja besta rakka, Gasekær’s Black Beautiful Gino. Þar sem Eros varð BOB fékk hann afhentan nýjan farandbikar deildarinnar sem mun framvegis verða notaður á deildarsýningum. Bikarinn hefur fengið nafnið Maríubikar til heiðurs Maríu Tómasdóttur (Ljúflings ræktun), sem flutti fyrstu cavalier hundana til landsins og hóf hér ræktun árið 1993. Gefendur bikarsins eru Rúnar Már Sverrisson og Guðbjörg Björnsdóttir (Ljúflings Ísarr Logi og Ljúflings Merlin Logi). Besta tík tegundar var Totally True Love Femme Fatale með íslenskt meistarastig.
Besti öldungur var ISCh ISVetCh RW-17-21 ISVW-24 Ljúflings Merlin Logi og best af gagnstæðu kyni ISJCh Eldlilju Kastani Coffee, bæði fengu þau öldungameistarastig. Besti hvolpur 3-6 mánaða var Miðkots Tía og besti rakki í sama aldursflokki Hafnarfjalls Elsu Alex. Besti hvolpur 6-9 mánaða var Eldlukku Möndlu Mía Rós.
Besti ræktunarhópur kom frá Mjallar ræktun, besti afkvæmahópur var Hafnarfjalls Selmu Karlotta ásamt afkvæmum og besta parið Hafnarfjalls Unu Tinna og Hafnarfjalls Unu Flóki.
Nánari úrslit í öllum flokkum má sjá hér að neðan:
Hvolpaflokkur 3-6 mánaða
Rakkar (4)
- sæti SL Hafnarfjalls Elsu Alex, eig. Sandra Theódóra Árnadóttir, rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann
- sæti SL Hafnarfjalls Elsu Ari, eig. Helga Sóley Hilmarsdóttir, rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann
Tíkur (7)
- sæti SL Miðkots Tía, eig. Sædís Magnúsdóttir og Tómas Guðbjörn Þorgeirsson, rækt. Sunna Gautadóttir
- sæti SL Hafnarfjalls Elsu Elísabet, eig. og rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann
- sæti SL Hafnarfjalls Elsu Erna, eig. og rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann
Hvolpaflokkur 6-9 mánaða
Tíkur (6)
- sæti SL Eldlukku Möndlu Mía Rós, eig. Kristín Friðriksdóttir, rækt. Svanborg S. Magnúsdóttir
20 rakkar fengu Excellent (6 með meistaraefni) og 3 fengu Very good.
Ungliðaflokkur (6-1)
- sæti ex. Granny’s Chips Gentleman, rækt. Castiano Della Presolana
- sæti ex. Llapsttam’s Fastlove, eig. Steinunn Rán Helgadóttir, rækt. M J Clark og Messrs M C Spall
- sæti ex. Hafnarfjalls Elsu Garpur, eig. Sólrún Helga Ingibergsdóttir, rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann
- sæti ex. Mjallar Geisli, eig. Jón Grímsson, rækt. Arna Sif Kærnested
Unghundaflokkur (3)
- sæti ex. Esju Dare To Dream James Bond, eig. og rækt. Svanhvít Dröfn Sæmundsdóttir
- sæti ex. Gasekær’s Tro på drømme Rockey, eig. Kristín Ósk Bergsdóttir, rækt. Anni Harboe Sørensen
- sæti vg. ISJW-24 Mjallar Garpur, eig. Laufey Guðjónsdóttir, rækt. Arna Sif Kærnested
Opinn flokkur (10)
- sæti ex.ck. Gasekær’s Black Beautiful Gino, eig. Kristín Ósk Bergsdóttir, rækt. Anni Harboe Sørensen
- sæti ex.ck. PLJCh Fiorintino My First, eig. Jón Grímsson, rækt. M. Buss
- sæti ex.ck. Navenda’s Charm of diamonds, eig. Guðríður Vestars, rækt. Helen Eikeland
- sæti ex. ISJCh RW-22 Mjallar Týr, eig. og rækt. Arna Sif Kærnested
Meistaraflokkur (4)
- sæti ex.ck. ISCh ISJCh RW-23 ISJW-23 Eros The Enchanting Dreamcatchers, eig. Guðríður Vestars, rækt. Giusy Pellegrini
- sæti ex.ck. C.I.B. NORDICCh ISCh ISJCh RW-24 ISW-23-24 Bonitos Companeros Mr. Spock, eig. Arna Sif Kærnested og Anna Þórðardóttir Bachmann, rækt. Markus Kirschbaum
- sæti ex. ISCh Cavalion Blues Brothers, eig. Anna Þórðardóttir Bachmann og Svanhvít Dröfn Sæmundsdóttir, rækt. Agnieszka Sndrearczyk Wozniakowska
- sæti ex. CIB NOCH DKCH SECH CIB-J Pecassa’s Mister Power Of Sprudle, eig. Guðríður Vestars, rækt. Nina Ryland Kallekleiv
Öldungaflokkur (1)
- sæti ex.ck. vet.cert. ISCh ISVetCh RW-17-21 ISVW-24 Ljúflings Merlin Logi, eig. Rúnar Már Sverrisson og Guðbjörg Björnsdóttir, rækt. María Tómasdóttir
Úrslit bestu rakkar
- ISCh ISJCh RW-23 ISJW-23 Eros The Enchanting Dreamcatchers – BOB
- C.I.B. NORDICCh ISCh ISJCh RW-24 ISW-23-24 Bonitos Companeros Mr. Spock
- Gasekær’s Black Beautiful Gino – CERT
- PLJCh Fiorintino My First
19 tíkur fengu Excellent (7 með meistaraefni) og 13 fengu Very good.
Ungliðaflokkur (7-3)
- sæti ex. Esju Nætur Viktoría, eig. og rækt. Svanhvít Dröfn Sæmundsdóttir
- sæti ex. Hafnarfjalls Karlottu Ísabella, eig. og rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann
- sæti ex. Hafnarfjalls Elsu Emma, eig. og rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann
- sæti ex. Mjallar Gyðja Mánadís, eig. og rækt. Arna Sif Kærnested
Unghundaflokkur (9)
- sæti ex.ck. Snjallar Hrafntinnu Viska, eig. og rækt. Steinunn Rán Helgadóttir
- sæti ex.ck. Mjallar Gná, eig. og rækt. Arna Sif Kærnested
- sæti ex. ISJCh Hafnarfjalls Birtu Linda, eig. og rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann
- sæti ex. Snilldar Úlfu Eldrún, eig. og rækt. Matthildur Úlfarsdóttir
Opinn flokkur (17-1)
- sæti ex.ck. Totally True Love Femme Fatale, eig. Anna Þórðardóttir Bachmann, rækt. Grah José og Monika Kuplen
- sæti ex.ck. Renesmee Des Precieuses Pierres, eig. Anna Þórðardóttir Bachmann, rækt. Marlene Mile Mouillon
- sæti ex. ISJCh Eldeyjarlilju Bonnie Tyler, eig. Fríða Kristín Albertsdóttir, rækt. Jón Grímsson
- sæti ex. Brellu Kviku Sprunga, eig. Sunna Gautadóttir, rækt. Valka Jónsdóttir
Meistaraflokkur (2)
- sæti ex.ck. ISCh ISJCh Snjallar Kastaní Björt á brá, eig. og rækt. Steinunn Rán Helgadóttir
- sæti ex.ck. NORDICCh ISCh ISJCh RW-23-24 ISJW-23 ISW-24 Elixir D’Amour-Bl The Enchanting Dreamcatchers, eig. Anna Þórðardóttir Bachmann, rækt. Giusy Pellegrini
Öldungaflokkur (1)
- sæti ex.ck. vet.cert. ISJCh Eldlilju Kastani Coffee, eig. Steinunn Rán Helgadóttir, rækt. Þórunn Aldís Pétursdóttir
Úrslit bestu tíkur
- Totally True Love Femme Fatale – BOS, CERT
- Snjallar Hrafntinnu Viska
- Renesmee Des Precieuses Pierres
- ISCh ISJCh Snjallar Kastaní Björt á brá
Ræktunarhópar, allir með heiðursverðlaun:
- Mjallar ræktun – Arna Sif Kærnested
- Hafnarfjalls ræktun – Anna Þórðardóttir Bachmann
- Esju ræktun – Svanhvít Dröfn Sæmundsdóttir
Afkvæmahópur, með heiðursverðlaun:
- Hafnarfjalls Selmu Karlotta, eig. Bergþóra Linda Húnadóttir, rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann
Besta parið
- Hafnarfjalls Unu Flóki og Hafnarfjalls Unu Tinna, eig. og rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann
- Esju Dare To Dream James Bond og Esju Nætur Viktoría, eig. og rækt. Svanhvít Dröfn Sæmundsdóttir
Ungir sýnendur 10-12 ára
- sæti Ragnheiður Birta Helgadóttir
- sæti Emilia Mist Ingimarsdóttir
- sæti Bjartey Halldórsdóttir
- sæti Aldís Eva Einarsdóttir
- sæti Ísold Káradóttir
Ungir sýnendur 13-17 ára
- sæti Emilý Björk Kristjánsdóttir
- sæti Jóhanna Alda Sigurjónsdóttir
Deildin óskar öllum vinningshöfum og ræktendum innilega til hamingju með árangurinn. Birt með fyrirvara um villur, vinsamlegast látið vita ef einhverjar finnast.