Hvolpasýning 20. febrúar 2026

BOB og BOS 3-6 mánaða
Hafnarfjalls Klöru Bjartur og Snjallar Hrafntinnu Romsa

Hvolpasýning og keppni ungra sýnenda fór fram föstudagskvöldið 20. febrúar í reiðhöll Fáks í Víðidal. Sýndir voru 10 cavalier hvolpar sem Anne Tove Strande frá Noregi dæmdi. Dýrabær gaf verðlaun og þátttökumedalíur.

Besti hvolpur 3-6 mánaða var Hafnarfjalls Klöru Bjartur og komst hann í 7 hvolpa úrtak í úrslitum. Besta tík í sama aldursflokki var Snjallar Hrafntinnu Romsa.

Rakkar 3-6 mánaða (4)

  1. sæti SL Hafnarfjalls Klöru Bjartur, eig. og rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann
  2. sæti SL Hafnarfjalls Klöru Rökkvi, eig. Helga Gunndís Þórhallsdóttir, rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann
  3. sæti SL Hafnarfjalls Klöru Elías, eig. og rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann

Tíkur 3-6 mánaða (5)

  1. sæti SL Snjallar Hrafntinnu Romsa, eig. og rækt. Steinunn Rán Helgadóttir
  2. sæti SL Hafnarfjalls Klöru Yrsa, eig. og rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann
  3. sæti SL Hafnarfjalls Klöru Luna, eig. Berglind Ýr Kristinsdóttir, rækt. Anna Þórðardóttir Bachmann