Fundargerð ársfundar 2026

Ársfundur Cavalierdeildar HRFÍ 2026 fyrir árið 2025 
Melabraut 17 Hafnarfirði
12. mars 2026 kl. 20:30

Fundinn sátu: Stjórn (Anna Þórðardóttir Bachmann, Guðríður Vestars, Sunna Gautadóttir og Svanhvít Sæmundsdóttir) auk 12 fundargesta.

Setning ársfundar

Anna Þórðardóttir Bachmann formaður setti fundinn kl. 20:32, bauð gesti velkomna og þakkaði fyrir góða mætingu. Fyrsta mál á dagskrá var að veita elsta núlifandi cavalier hundi viðurkenningu.

Öldungur heiðraður

Aldursforseti tegundarinnar er Hlínar Plútó en hann er fæddur 8. júlí 2010 og því orðinn 15 ára og 8 mánaða. Foreldrar hans voru Russmic Jack Junior og Hlínar Dominique, eigandi Kristín Marksdóttir og ræktandi Edda Hlín Hallsdóttir. Plútó mætti með eigendum sínum og þau tóku á móti blómvendi og viðurkenningarskjali frá deildinni sem formaður afhenti.

Kosning fundarstjóra og ritara

Lagt var til að Sigríður Margrét Jónsdóttir yrði fundarstjóri og Sunna Gautadóttir ritari, var það samþykkt. Sigríður Margrét kannaði lögmæti fundarins og setti þá sjálfan ársfundinn formlega. Hún bauð Önnu formanni næst að fara yfir ársskýrslu.

Skýrsla stjórnar

Anna fór yfir helstu punkta og tölfræði áŕsskýrslu með glærukynningu. Þar kom m.a. fram að einn af hápunktum ársins sem tengist tegundinni okkar var þegar María Tómasdóttir fékk fyrst ræktenda ásamt Auði Valgeirsdóttur Guðrúnarverðlaunin. Halldóra Bergsdóttir bað um nánari skýringar á fyrir hvað þessi verðlaun standa og Guðríður Vestars sem einmitt er í nefnd Guðrúnarverðlaunanna fór yfir það. Þau eru veitt ræktendum sem hafa ræktað í a.m.k. 20 ár, náð góðum árangri og hugað vel að sínum tegundum.

Arna Sif Kærnested spurði út í gotlistann og hvort það gæti verið að þar vantaði einhver got inn. Skýringin er sú að listinn er yfir skráð got á árinu en ekki fædd, í ársskýrslu 2025 koma því fram nokkur got sem fæddust seint á árinu 2024 en voru skráð eftir áramót. Einnig vantar inn nokkur got frá lok árs 2025 sem koma inn í næstu skýrslu. Ástæðan fyrir þessu er að auðvelt er að fletta upp öllum ættbókarskráningum á Hundavefnum en við gætum farið á mis við einhver got sem fædd eru á árinu ef við vitum ekki af þeim og ekki er búið að skrá þau þegar ársfundur fer fram. Það var því ákveðið að ársskýrsla myndi miða við ættbókarfærð got.

Umræða myndaðist um athugasemd vegna fjölda greininga hjá cavalier í augnskoðun sem fram kom í fundargerð HRFÍ frá 16. febrúar (76,5% cavalier hunda sem mættu í augnskoðun í febrúar fengu einhvers konar greiningu). Fundargestir voru sammála um að leitt væri að stjórn HRFÍ hafi ekki upplýst deildina og lýst sínum áhyggjum áður en tegundin okkar var sérstaklega nefnd í fundargerð.

Steinunn Rán Helgadóttir velti því upp hvort cavalier hundar væru mögulega með hlutfallslega mestu skráninguna í augnskoðun. Arna Sif Kærnested deildi því með hópnum að hún hefði tekið saman niðurstöður eftir nokkrar augnskoðanir og þetta hefði greinilega verið óheppni akkúrat í þessari febrúarskoðun, hlutfall greininga hefur annars verið nær 50%. Stjórn deildarinnar mun bregðast við þessari athugasemd frá stjórn HRFÍ og skoða málið.

Ársreikningur

Fundarstjóri þakkaði fyrir góða yfirferð og bauð Svanhvíti Sæmundsdóttur gjaldkera að fara yfir ársreikning deildarinnar sem var samþykktur án athugasemda.

Stjórnarkjör

Laus voru tvö sæti til 2 ára og eitt til 1 árs en Anna Þórðardóttir Bachmann og Sunna Gautadóttir buðu sig báðar fram til áframhaldandi stjórnarsetu. Engin framboð bárust úr sal og þær því sjálfkjörnar. Stjórn lagði til Bergþóru Lindu Húnadóttur í það sæti sem laust var til eins árs en hún hefur setið í sýninganefnd síðasta ár og hannað allar auglýsingar.

Bergþóra samþykkti að koma inn og stjórn 2026-2027 skipa því:

  • Anna Þórðardóttir Bachmann
  • Bergþóra Linda Húnadóttir
  • Guðríður Vestars
  • Svanhvít Dröfn Sæmundsdóttir
  • Sunna Gautadóttir

Önnur mál

Guðbjörg Auðar Björnsdótti bar upp spurningu varðandi rakkalistann og hvort væru breytingar hjá Hundaræktarfélaginu varðandi skráningar á hann. Cavalierdeild sér alfarið um þá skráningu og reglur hafa ekki breyst, en hjartavottorð þurfa að vera komin inn á Hundavefinn til þess að rakkar fari á hjartalista. Hér var um að ræða vottorð þar sem búið var að greiða fyrir innsetningu en vottorð samt ekki skilað sér inn á vefinn, það verður athugað nánar.

Steinunn Rán Helgadóttir spurði um innskráningargjöld á hjartavottorðum og hvort það væri ekki rétt munað að síðasti ársfundur hefði sent inn ályktun vegna þess. Það var jú gert og vildi deildin þá fá niðurfellingu á innskráningargjaldi á hjartavottorðum, með þeim rökstuðningi að þau vottorð gilda aðeins í 6 mánuði fyrstu 5 ár hundanna og eftir það í 1 ár. Ræktendur og fleiri eru því að taka ansi mörg vottorð á hvern hund og mikilvægt að sem flest skili sér á vefinn. Við fengum höfnun á niðurfellingu gjaldsins en deildin kom þá með aðra tillögu sem var samþykkt. Þegar um er að ræða hópskoðun á vegum deildarinnar veitir HRFÍ 50% afslátt af innskráningargjaldi, deildin sér um að rukka og skila því gjaldi þannig að vottorð skila sér fyrr inn og ekki þarf að senda út greiðsluseðla til eigenda. Umræður mynduðust um hversu mikið flækjustig þetta innskráningargjald er, t.d. þegar eigendur af hundi eru fleiri en einn, þá getur verið óljóst hvert greiðsluseðill á að fara o.s.frv. Þetta getur þýtt auka símtöl, kreditfærslur og aðra vinnu á skrifstofu HRFÍ.

Formaður fór yfir hvað er á döfinni hjá deildinni þetta árið. Þar ber helst að nefna tvöfalda deildarsýningu 18. og 19. apríl en skráningarfrestur á hana er til 3. apríl. Eins og síðustu ár verða hvolpahittingar, hópskoðanir og regluleg sýningaþjálfun. Í haust langar okkur að ná inn 100 hundum í stóra hjartaskoðun. Stefnum einnig á fleiri göngur, feldhirðunámskeið og mögulega einhvers konar rafrænt námskeið/fyrirlestur.

Svava Sigríður Ragnarsdóttir spurði um aldursbil hunda í fyrirhugaðri 100 hunda hjartaskoðun, við sjáum fyrir okkur að miða við aldurinn 5-7 ára hjá stærstum hluta hundanna. Arna Sif Kærnested spurði hvort þyrfti ekki að endurtaka svona stóra skoðun um það bil 2 árum seinna til að fylgjast áfram með hlutfalli hjartahreinna hunda á ákveðnum aldri. Það er eitthvað sem stjórn deildarinnar vill stefna að.

Svava Sigríður Ragnarsdóttir spurði hvort skylda væri að DNA prófa fyrir efnaskiptavillunni MCADD. Nei, það er ekki í reglum en deildin mælir þó sterklega með því að ræktendur þekki stöðu sinna hunda. Svava spurði einnig um önnur DNA próf, í ræktunarreglum er skýrt að skima þarf fyrir Episodic Falling (EF) og Dry Eye/Curly Coat (CC) á annarri hverri kynslóð. Einnig er æskilegt að rakkar á rakkalista séu með þekkta stöðu bæði á EF/CC og MCADD. Hægt er að panta öll þessi DNA próf í gegnum https://labogen.com/ og þar er ódýrara að taka stærsta cavalier pakkann með fleiri umfram prófum heldur en að kaupa hvert próf fyrir sig. Fundarstjóri benti einnig á að ef fólk skráir sig sem ræktanda inn á Labogen síðuna fæst afsláttur. Svanborg Magnúsdóttir benti á að ef búið er að senda inn DNA sýni áður, þá er hægt að panta ný próf án þess að senda DNA út aftur því rannsóknarstofan geymir sýnin nokkuð lengi.

Lok fundar

Anna Þórðardóttir Bachmann þakkaði fyrir góðan fund og var honum slitið kl. 21:33.

Fundargestir

  • Anna Þórðardóttir Bachmann
  • Arna Sif Kærnested
  • Ásta Björg Guðjónsdóttir
  • Bergþóra Linda Húnadóttir
  • Björn Angantýr Ingimarsson
  • Guðbjörg Auðar Björnsdóttir
  • Guðríður Vestars
  • Halldóra Bergsdóttir
  • Íris Dögg Gísladóttir
  • Kristín Ósk Bergsdóttir
  • María Tómasdóttir
  • Steinunn Rán Helgadóttir
  • Sunna Gautadóttir
  • Svanborg Magnúsdóttir
  • Svanhvít Sæmundsdóttir
  • Svava Sigríður Ragnarsdóttir

Fundargerð ritaði Sunna Gautadóttir