Ársfundur Cavalierdeildar HRFÍ haldinn 12. mars 2026 í húsnæði Hundaræktarfélags Íslands að Melabraut 17 í Hafnarfirði.
Árið 2025 var sannkallað afmælisár þar sem deildin var 30 ára og þá ber helst að nefna tvöfalda deildarsýningu í maí.
Starf deildarinnar var fjölbreytt með ýmsum viðburðum. Við héldum tvöfalda sérsýningu í maí, ræktendur hittust í ræktendaspjalli og í upphafi árs var haldið vel sótt bingó til styrktar deildarinnar, en þar fór einnig fram heiðrun stigahæstu hunda og ræktenda eftir sýningaárið 2024. Ein ganga var á árinu, hún var í desember en þar var gengið í Hafnarfirði um Hellisgerði og jólaþorpið. Hvolpahittingur var haldinn tvívegis á árinu í mars og október. Fjórar heilsufarsskoðanir voru á vegum deildarinnar, tvær í Reykjavík og tvær á Akureyri. Deildin hélt yfir 20 sýningaþjálfanir eins og árið á undan. Deildin tók þátt í smáhundadögum hjá Garðheimum í mars. Deildin var með kynningarbás fyrir deildina/tegundina á októbersýningu HRFÍ. Deildin heldur úti vefslóðinni cavalier.is auk tveggja Facebook síðna þar sem birtar eru fréttir og myndir. Auk þess hélt stjórn reglulega fundi. Einnig voru sendir út hóppóstar til hvolpakaupenda, ræktenda og eigenda rakka á rakkalista. Þess má einnig geta að deildin var tvívegis á árinu með fjölmennustu skráningu á sýningum félagsins.
Samið var við Dýrabæ um að vera styrktaraðili deildarinnar til tveggja ára, 2025 og 2026.
Í stjórn Cavalierdeildar HRFÍ sátu þetta árið:
Anna Þórðardóttir Bachmann, Guðríður Vestars, Sunna Gautadóttir og Svanhvít Sæmundsdóttir.
Steinunn Rán Helgadóttir sagði af sér stjórnarsetu í júní 2025.
- Anna hefur sinnt hlutverki formanns
- Sunna hefur séð um ritarahlutverkið
- Svanhvít sá um gjaldkerahlutverkið
- Sunna og Svanhvít sáu um vefsíðu og aðra netmiðla með aðstoð hinna
- Guðríður hefur séð um að panta, sækja og skutla því sem hefur þurft fyrir sýningar og viðburði
- Anna, Guðríður og Sunna hafa séð um sýningaþjálfanir með aðstoð annarra
Öðrum verkefnum hefur verið skipt milli stjórnarmanna. Deildin hefur starfrækt ræktunarráð en í því situr stjórn auk Maríu Tómasdóttur.Bergþóra eða BH Hönnun hefur séð um auglýsingagerð fyrir deildina.
Ræktun
Got
Fjöldi gota sem skráð voru á árinu hjá HRFÍ var 23 hjá 14 ræktendum. Meðalfjöldi hvolpa í goti var 3,65.

Litaskipting hvolpa var þessi:
41 blenheim, 6 þrílitir, 18 ruby og 19 black & tan.



Á árinu voru skráðir 43 rakkar og 41 tík


13 rakkar feðruðu þessi 23 got en hér má sjá lista yfir þá auk fjölda hvolpa og gota.

14 ræktendur voru með got skráð á árinu.


Rakkalisti
- 27 rakkar voru á rakkalistanum 2025
- 4 þrílitir ísl.
- 2 blenheim innfluttir
- 11 blenheim ísl.
- 1 ruby innfluttur
- 3 ruby ísl.
- 1 black & tan innfluttur
- 5 black & tan ísl.

Innflutningur
Sjö rakkar og tvær tíkur voru flutt inn á árinu samkvæmt skráningu HRFÍ.
1 frá Englandi, 2 frá Finnlandi, 1 frá Lettlandi, 1 frá Noregi, 3 frá Póllandi og 1 frá Þýskalandi.
- Alan Dobry Rok
- Bonitos Companeros Jailbreak
- Cavalion (FCI) MR WOLF
- CIB CIB-J NOCH DKCH SECH Mister Power Of Sprudle
- Latte Dobry Rok
- Llapsttam’s Fastlove
- PLJCH Fiorintino My First
- Suloisen Tehty Silkistä Ja Sametista
- Suloisen Tehty Talkootyöllä
Aldursforseti tegundarinnar
Aldursforseti deildarinnar árið 2025 er Hlínar Plútó en hann er fæddur 8. júlí 2010. Hann er því orðinn 15 ára og 8 mánaða. Foreldrar hans voru þau Russmic Jack Junior og Hlínar Dominique. Eigandi hans er Kristín Marksdóttir og ræktandi Edda Hlín Hallsdóttir.
Heilsufar
Augnskoðanir
Skoðaðir voru 63 hundar á árinu, 44 tíkur og 19 rakkar. 37 hundar voru með hrein augnvottorð en 26 með athugasemdum sem skiptust upp í 11 mismunandi greiningar, sumir hundar með fleiri en eina og einn með þrjár greiningar.
Fimm hundar voru settir í ræktunarbann á árinu vegna niðurstöðu augnskoðunar.


Hjartaskoðanir
Á árinu voru 130 hundar skoðaðir en 82 hundar með eitt vottorð, 21 voru skoðaðir tvisvar og tveir skoðaðir þrisvar. Voru því gefin út 128 vottorð árið 2025. 9 voru með greiningu og voru þeir allir yfir 7 ára.
- 1 m/gr. 1
- 1 m/gr. 2
- 3 m/gr. 3
- 3 m/gr. 4
- 1 m/gr. 5
- 0 m/gr. 6
Deildin var með tvær hópskoðanir á höfuðborgarsvæðinu á árinu. Þær voru í samstarfi við Ólöfu Loftsdóttur og Lísu Bjarnadóttir dýralækna í Víðidalnum og voru báðar haldnar í húsnæði Dýraspítalans í Víðidal. Auk þess bauð deildin upp á tvær hópskoðanir á Akureyri í samstarfi við Helgu Finnsdóttur. Einnig var boðið upp á DNA sýnatöku í hópskoðunum deildarinnar. Stjórn vill ítreka mikilvægi skoðunar og að vottorð séu tekin til að halda utan um þróunina.



Hnéskeljavottorð
Voru jafn mörg og hjartavottorðin eða 130. Enginn hundur var skoðaður með hnéskeljalos.
DNA vottorð
9 hundar skiluðu inn DNA prófum vegna Episodic Falling (EF) og Curly Coat/Dry eye (CC). Allir voru fríir. Deildin hefur haldið utan um niðurstöður DNA sýnatöku á MCADD og hefur 122 vottorðum verið skilað til deildarinnar frá upphafi. Deildin hefur einnig reiknað niðurstöður 55 hunda.
Skiptingin á DNA niðurstöðum eru:
Tíkur
- 26 fríar
- 39 berar
- 10 MCADD
Rakkar
- 15 fríir
- 26 berar
- 6 MCADD
MRI
Stjórn hefur undanfarið ár unnið að því að undirbúa heilsufarsskoðun vegna SM/CM (holmænu).
- Rannsóknarleyfi – Ekki talin þörf
- Erum komnar í samvinnu við dýralækna
- Samskipti við erlenda stofu sem myndi sjá um greiningar á myndum
- Vegna anna hjá þeirri stofu sem taka átti skoðunina mun ekki verða af skoðun í því tæki en stjórn mun skoða málið áfram
Sýningar
Tvöföld deildarsýning
Cavalierdeildin hélt tvöfalda sérsýningu í tilefni 30 ára afmæli deildarinnar helgina 10.-11. maí, í húsnæði HRFÍ að Melabraut 17 í Hafnarfirði. Sýningarstjóri og hringstjóri báða dagana var Sóley Halla Möller, ritarar og utanumhald á verðlaunum Anja Björg Kristinsdóttir og Erla Heiðrún Benediktsdóttir, ljósmyndari Ágúst Elí Ágústsson. Dýrabær gaf verðlaun og BH hönnun sá um skreytingar.
Á laugardeginum voru sýndir 18 hvolpar, 23 rakkar og 33 tíkur, auk þriggja ræktunarhópa, afkvæmahóps og tveggja para. Dómari var Nadja Lafontaine frá Danmörku.
Besti hundur tegundar og þá einnig besti hundur sýningar á laugardeginum var Snjallar Hrafntinnu Viska með íslenskt meistarastig. Hún fékk auk þess afhentan nýjan farandbikar deildarinnar sem mun framvegis verða notaður á deildarsýningum. Bikarinn fékk nafnið Maríubikar til heiðurs Maríu Tómasdóttur (Ljúflings ræktun), sem flutti fyrstu cavalier hundana til landsins og hóf hér ræktun árið 1993. Gefendur bikarsins eru Rúnar Már Sverrisson og Guðbjörg Björnsdóttir (Ljúflings Ísarr Logi og Ljúflings Merlin Logi). Bestur af gagnstæðu kyni var ISCh ISJCh RW-23 ISJW-23 Eros The Enchanting Dreamcatchers en meistarastigið gekk niður til annars besta rakka, Navenda’s Charm of diamonds.
Besti ungliði var Esju Nætur Viktoría með ungliðameistarastig. Besti öldungur var ISJCh Eldlilju Kastani Coffee og besti öldungarakki ISCh ISVetCh RW-17-21 ISVW-24 Ljúflings Merlin Logi, bæði með öldungameistarastig. Besti hvolpur 3-6 mánaða var Miðkots Tía og besti rakki í sama aldursflokki Mánaljóss Ecco. Besti hvolpur 6-9 mánaða var Eldlukku Netta Blásól.
Besti ræktunarhópur kom frá Mjallar ræktun, besti afkvæmahópur var Hafnarfjalls Selmu Karlotta ásamt afkvæmum og besta parið Esju Dare To Dream James Bond og Esju Nætur Viktoría.
Á sunnudeginum voru sýndir 17 hvolpar, 23 rakkar og 32 tíkur, auk þriggja ræktunarhópa, afkvæmahóps og tveggja para. Dómari var Miyuki Kotani frá Írlandi. Þá fór einnig fram keppni ungra sýnenda sem Brynja Kristín Magnúsdóttir dæmdi.
Besti hundur tegundar og þá jafnframt besti hundur sýningar seinni daginn var ISCh ISJCh RW-23 ISJW-23 Eros The Enchanting Dreamcatchers en meistarastigið gekk niður til þriðja besta rakka, Gasekær’s Black Beautiful Gino. Þar sem Eros varð BOB fékk hann afhentan Maríubikarinn. Besta tík tegundar var Totally True Love Femme Fatale með íslenskt meistarastig.
Besti öldungur var ISCh ISVetCh RW-17-21 ISVW-24 Ljúflings Merlin Logi og best af gagnstæðu kyni ISJCh Eldlilju Kastani Coffee, bæði fengu þau öldungameistarastig. Besti hvolpur 3-6 mánaða var Miðkots Tía og besti rakki í sama aldursflokki Hafnarfjalls Elsu Alex. Besti hvolpur 6-9 mánaða var Eldlukku Möndlu Mía Rós.
Besti ræktunarhópur kom frá Mjallar ræktun, besti afkvæmahópur var Hafnarfjalls Selmu Karlotta ásamt afkvæmum og besta parið Hafnarfjalls Unu Tinna og Hafnarfjalls Unu Flóki.
Sýningar HRFÍ
Alþjóðleg Norðurljósasýning 1. mars í Samskipahöllinni í Kópavogi
Dómari var Eva Liljekvist Borg frá Svíþjóð. Mjög góð skráning var hjá cavalier eða samtals 13 hvolpar, 20 rakkar, 28 tíkur og 4 ræktunarhópar, en 3 rakkar mættu ekki.
BOB og 4. besti hundur í tegundahópi 9 var C.I.B. NORDICCh ISCh ISJCh RW-24 ISW-23-24 Bonitos Companeros Mr. Spock, BOS var NORDICCh ISCh ISJCh RW-23-24 ISJW-23 ISW-24 Elixir D’Amour-Bl The Enchanting Dreamcatchers, með alþjóðlegt meistarastig. Þar sem Mr. Spock er nú þegar orðinn alþjóðlegur meistari gekk alþjóðlega rakkameistarastigið niður til ISCh ISJCh RW-23 ISJW-23 Eros The Enchanting Dreamcatchers sem varð annar besti rakki. Íslensku meistarastigin gengu niður til Hafnarfjalls Karlottu Tómasar (þriðja besta rakka) og Mjallar Gnár sem varð þriðja besta tík.
Besti ungliði var Hafnarfjalls Karlottu Ísabella með íslenskt og alþjóðlegt ungliðameistarastig. Hún náði í 6 hunda úrtak í keppni um besta ungliða í tegundahópi 9. Besti öldungur var ISCh ISVetCh RW-17-21 ISVW-24 Ljúflings Merlin Logi með íslenskt og alþjóðlegt öldungameistarastig, sem var hans þriðja og varð hann því alþjóðlegur öldungameistari.
Besti hvolpur 4-6 mánaða var Eldlukku Möndlu Mía Rós og bestur af gagnstæðu kyni Eldlukku Netti Hnoðri Eldur. Besti hvolpur 6-9 mánaða var Llapsttam’s Fastlove sem komst í 6 hvolpa úrtak í úrslitum dagsins. Besta tík í hvolpaflokki var Mjallar Gyðja Mánadís.
Besti ræktunarhópur kom frá Hafnarfjalls ræktun.
Hvolpasýning 12. apríl í reiðhöll Fáks í Víðidal
HRFÍ stóð fyrir hvolpasýningu með íslenskum dómurum og voru rúmlega 180 hvolpar á aldrinum 3-9 mánaða skráðir.
Góð skráning var hjá cavalier eða 13 hvolpar og dómari var Ágústa Pétursdóttir. Besti hvolpur 3-6 mánaða var Hafnarfjalls Elsu Alex og besta tík í sama aldursflokki Miðkots Lauma. Besti hvolpur 6-9 mánaða var Eldlukku Möndlu Mía Rós og besti rakkahvolpur Eldlukku Netti Hnoðri Eldur.
Reykjavík Winner og NKU Norðurlandasýning 21. júní á Víðistaðatúni í Hafnarfirði
Samtals mættu 49 cavalier hundar til leiks; 9 hvolpar, 16 rakkar og 24 tíkur, auk þriggja ræktunarhópa. Dómari var Jan Törnblom frá Svíþjóð sem hefur sjálfur ræktað cavalier undir ræktunarnafninu Hackensack.
Besti hundur tegundar var C.I.B. NORDICCh ISCh ISJCh RW-24 ISW-23-24 Bonitos Companeros Mr. Spock og besta tík NORDICCh ISCh ISJCh RW-23-24 ISJW-23 ISW-24 Elixir D’Amour-Bl The Enchanting Dreamcatchers, með titilinn RW-25. Meistarastigin gengu niður til Navenda’s Charm of Diamonds, sem var að fá sitt þriðja stig og varð því íslenskur meistari, og Totally True Love Femme Fatale. Þau fengu einnig Norðurlandameistarastig.
Besti ungliði tegundar var Hafnarfjalls Karlottu Ísabella með íslenskt og Norðurlanda-ungliðameistarastig, þetta var hennar annað íslenska stig og hún því nýr ungliðameistari. Hún fékk auk þess titilinn RJW-25. Besti öldungur tegundar var ISJCh Eldlilju Kastani Coffee með íslenskt og Norðurlanda-öldungameistarastig. Hún fékk titilinn RVW-25 og einnig síðasta stigið upp í íslenskan öldungameistaratitil.
Besti hvolpur 4-6 mánaða var Hafnarfjalls Elsu Alex og besti hvolpur 6-9 mánaða Miðkots Tía. Besti ræktunarhópur tegundar kom frá Hafnarfjalls ræktun.
Alþjóðleg sýning 22. júní á Víðistaðatúni í Hafnarfirði
Sýndir voru 8 cavalier hvolpar, 14 rakkar og 23 tíkur, einnig þrír ræktunarhópar. Dómari var Alexandra Drott Staedler frá Svíþjóð.
Besti hundur tegundar var Mjallar Gná með íslenskt og alþjóðlegt meistarastig. Bestur af gagnstæðu kyni var ISCh ISJCh RW-23 ISJW-23 Eros The Enchanting Dreamcatchers með alþjóðlegt meistarastig, íslenska stigið gekk niður til Hafnarfjalls Karlottu Tómasar sem fékk þar með sitt síðasta stig til þess að verða íslenskur meistari.
Besti ungliði tegundar var Esju Nætur Viktoría með íslenskt og alþjóðlegt ungliðameistarastig, sitt annað íslenska stig og varð því íslenskur ungliðameistari. Besti öldungur tegundar var C.I.B.-V ISCh ISVetCh RW-17-21 ISVW-24 Ljúflings Merlin Logi með íslenskt og alþjóðlegt öldungameistarastig. Besta öldungatík var ISJCh ISVetCh RVW-25 Eldlilju Kastani Coffee, einnig með íslenskt og alþjóðlegt öldungameistarastig.
Besti hvolpur 4-6 mánaða var Hafnarfjalls Elsu Alex og besti hvolpur 6-9 mánaða var Miðkots Tía. Besti ræktunarhópur var frá Mjallar ræktun.
Volcano Winner Norðurlandasýning 16. ágúst á Víðistaðatúni í Hafnarfirði
Í okkar tegund voru sýndir 11 hvolpar, 14 rakkar, 24 tíkur og 4 ræktunarhópar. Dómari var Ligita Zake frá Lettlandi og er hún sjálf cavalier eigandi.
Besti hundur tegundar var C.I.B. NORDICCh ISCh ISJCh RW-24 ISW-23-24 Bonitos Companeros Mr. Spock með titilinn Volcano Winner. Íslenska stigið gekk niður til CIB NOCH DKCH SECH CIB-J Pecassa’s Mister Power Of Sprudle og varð hann þar með íslenskur meistari, hann fékk einnig Norðurlandastigið. Besta tík tegundar með íslenskt og Norðurlandameistarastig, auk titilsins Volcaco Winner, var Snjallar Hrafntinnu Viska.
Besti ungliði tegundar var Bonitos Companeros Jailbreak með íslenskt og Norðurlanda-ungliðameistarastig, einnig titilinn Volcano Junior Winner. Hann náði einnig 3. sæti í keppni um besta ungliða í grúppu 9. Best af gagnstæðu kyni var ISJCh Esju Nætur Viktoría með Norðurlandameistarastig og titilinn Volcano Junior Winner. Íslenska ungliðameistarastigið gekk niður til Hafnarfjalls Elsu Emmu. Besti öldungur tegundar var C.I.B.-V ISCh ISVetCh RW-17-21 ISVW-24 Ljúflings Merlin Logi með sitt þriðja Norðurlanda-öldungameistarastig og varð því Norðurlanda-öldungameistari, auk þess að fá titilinn Volcano Veteran Winner. Best af gagnstæðu kyni var Eldlukku Salínu Sunshine Sera með íslenskt og Norðurlanda-öldungameistarastig, auk nafnbótarinnar Volcano Vet. Winner.
Besti hvolpur 4-6 mánaða var Hafnarfjalls Birtu Brá og besti rakki í sama aldursflokki Hafnarfjalls Birtu Már. Besti hvolpur 6-9 mánaða var Hafnarfjalls Elsu Alex og best af gagnstæðu kyni Miðkots Tía. Besti ræktunarhópur tegundar var frá Mjallar ræktun.
Alþjóðleg sýning 17. ágúst á Víðistaðatúní í Hafnarfirði
Sýndir voru 11 cavalier hvolpar, 13 rakkar, 23 tíkur og 3 ræktunarhópar. Dómari var Joakim Ohlsson frá Svíþjóð sem var áður cavalier ræktandi.
Besti hundur tegundar var NORDICCh ISCh ISJCh RW-23-24-25 ISJW-23 ISW-24 Elixir D’Amour-Bl The Enchanting Dreamcatchers með alþjóðlegt meistarastig, íslenska stigið gekk niður til VOLW-25 Snjallar Hrafntinnu Visku. Elixir náði síðan þeim frábæra árangri að landa 2. sæti í sterkri keppni í grúppu 9.
Bestur af gagnstæðu kyni og einnig besti ungliði tegundar var VOLJW-25 Bonitos Companeros Jailbreak með íslenskt og alþjóðlegt ungliðameistarastig, einnig íslenskt meistarastig en er of ungur fyrir það alþjóðlega. Þetta var hans annað íslenska ungliðastig og varð hann því íslenskur ungliðameistari. Hann varð í 4. sæti í úrslitum um besta ungliða í grúppu 9. Besta ungliðatík var ISJCh VOLJW-25 Esju Nætur Viktoría með íslenskt og alþjóðlegt ungliðameistarastig.
Besti hvolpur 4-6 mánaða var Hafnarfjalls Birtu Bára og bestur af gagnstæðu kyni Hafnarfjalls Birtu Már. Besti hvolpur 6-9 mánaða var Miðkots Tía og besti rakki 6-9 mánaða Cavalion (FCI) Mr Wolf. Besti ræktunarhópur var frá Hafnarfjalls ræktun.
Hvolpasýning 3. október í reiðhöll Fáks í Víðidal
Rúmlega 160 hvolpar voru skráðir, en sýndir voru 6 cavalier hvolpar í yngri flokki og 3 í þeim eldri. Dómari var Mikael Nilsson frá Svíþjóð. Besti hvolpur 3-6 mánaða var Miðkots Askja og bestur af gagnstæðu kyni Brellu Sahara Þinur Dropi. Besti hvolpur 6-9 mánaða var Hafnarfjalls Birtu Bára og besti rakki í sama aldursflokki Hafnarfjalls Birtu Már.
Alþjóðleg sýning 4. október í reiðhöll Fáks í Víðidal
Um 850 hundar voru skráðir og þar af voru flestir cavalier eða 62 hundar ásamt 4 ræktunarhópum. Dómari var Mikael Nilsson frá Svíþjóð.
Besti hundur tegundar var C.I.B. NOCH DKCH SECH CIB-J ISCh Pecassa’s Mister Power Of Sprudle og besta tík tegundar NORDICCh ISCh ISJCh RW-23-24-25 ISJW-23 ISW-24 Elixir D’Amour-Bl The Enchanting Dreamcatchers. Alþjóðlega rakkameistarastigið nýttist ekki í þetta sinn þar sem bæði besti og annar besti rakki eru nú þegar alþjóðlegir meistarar. Elixir var hins vegar að fá sitt fjórða alþjóðlega stig og varð því alþjóðlegur meistari. Íslensku meistarastigin gengu niður til ISJCh VOLJW-25 Esju Nætur Viktoríu og ISJCh VOLJW-25 Bonitos Companeros Jailbreak.
Besti ungliði tegundar var ISJCh VOLJW-25 Esju Nætur Viktoría og besti ungliðarakki ISJCh VOLJW-25 Bonitos Companeros Jailbreak, bæði með alþjóðleg ungliðameistarastig. Viktoría var að fá sitt þriðja stig og varð því alþjóðlegur ungliðameistari en hún er fyrsti cavalier hundurinn ræktaður á Íslandi sem nær þeim árangri. Hafnarfjalls Elsu Emma fékk íslenskt ungliðameistarastig sem var hennar annað stig og hún því orðin íslenskur ungliðameistari.
Besti ræktunarhópur tegundar var frá Hafnarfjalls ræktun og náði þeim frábæra árangri í úrslitum dagsins að verða 3. besti ræktunarhópur.
Opin æfingasýning 25. október í reiðhöll Fáks í Víðidal
Laugardaginn 25. október fór fram opin æfingasýning á vegum sýningadómaranefndar HRFÍ í reiðhöll Fáks í Víðidal. Þar fengu tilvonandi dómaranemar að spreyta sig og var góð skráning á sýninguna, samtals 160 hundar. Cavalierdeild lét sig að sjálfsögðu ekki vanta og voru skráðir 18 cavalier hundar.
Besti hundur tegundar var ISCh ISJCh RW-23 ISJW-23 Eros The Enchanting Dreamcatchers, dómari Sigríður Margrét Jónsdóttir. Best af gagnstæðu kyni var ISJCh VOLJW-25 Esju Nætur Viktoría. Úrslit um besta hund sýningar dæmdi síðan María Björg Tamimi og varð Eros þriðji besti hundur sýningar. Besti hvolpur 3-6 mánaða var Eldlukku Töru Ögri. Besti hvolpur 6-9 mánaða var Miðkots Askja og besti rakki í sama aldursflokki Brellu Sahara Þinur Dropi.
Hvolpasýning 28. nóvember í reiðhöll Fáks í Víðidal
Samtals voru 9 cavalier hvolpar skráðir og dómari var Sara Nordin frá Svíþjóð. Besti hvolpur 6-9 mánaða var Miðkots Esja sem komst einnig í 6 hvolpa úrtak í úrslitum um besta hvolp sýningar.
Winter Wonderland & Ísland Winner 30. nóvember í reiðhöll Fáks í Víðidal
Dómari var Sara Nordin frá Svíþjóð sem sjálf er ræktandi í tegundinni. Meiriháttar skráning var hjá okkur eða samtals 61 hundur, þó einhver forföll hafi orðið. Þrír ræktunarhópar voru einnig sýndir.
Besti hundur tegundar og einnig 4. besti hundur í tegundahópi 9 var C.I.B. NORDICCh ISCh ISJCh RW-24-25 VOLW-25 ISW-23-24 Bonitos Companeros Mr. Spock. Best af gagnstæðu kyni með íslenskt og Norðurlandameistarastig var Snjallar Silfraða Sylgja. Bæði fengu þau titilinn Ísland Winner ‘25 og Crufts qualification. Íslenska rakkameistarastigið gekk niður til ISJCh VOLJW-25 Bonitos Companeros Jailbreak og Norðurlandameistarstigið til C.I.B. C.I.B.-J NOCh DKCh SECh ISCh Pecassa’s Mister Power Of Sprudle, sem varð þar með Norðurlandameistari.
Besti ungliði tegundar var ISJCh VOLJW-25 Bonitos Companeros Jailbreak og besta ungliðatík ISJCh Hafnarfjalls Elsu Emma. Bæði með Norðurlanda-ungliðameistarastig, titilinn ISJW-25 og Crufts qualification. Bonitos Companeros Jailbreak var að fá sitt annað Norðurlandastig og varð því Norðurlanda-ungliðameistari. Hann varð einnig í 4. sæti í keppni um besta ungliða tegundahóps 9.
Besti ræktunarhópur tegundar var frá Hafnarfjalls ræktun.
Nýir meistarar og titlar
Íslenskir ungliðameistarar:
- NORDICJCh ISJCh VOLJW-25 ISJW-25 Bonitos Companeros Jailbreak
- ISJCh VOLJW-25 Esju Nætur Viktoría
- ISJCh ISJW-25 Hafnarfjalls Elsu Emma
- ISJCh RJW-25 Hafnarfjalls Karlottu Ísabella
Norðurlanda-ungliðameistari:
- NORDICJCh ISJCh VOLJW-25 ISJW-25 Bonitos Companeros Jailbreak
Alþjóðlegur ungliðameistari (bíður staðfestingar FCI):
- ISJCh VOLJW-25 Esju Nætur Viktoría
Íslenskir meistarar:
- ISCh Navenda’s Charm of diamonds
- ISCh Hafnarfjalls Karlottu Tómas
- C.I.B. C.I.B.-J NORDICCh ISCh NOCh SECh DKCh NJubCh Pecassa’s Mister Power Of Sprudle
Norðurlandameistari:
- C.I.B. C.I.B.-J NORDICCh ISCh NOCh SECh DKCh NJubCh Pecassa’s Mister Power Of Sprudle
Alþjóðlegur meistari:
- C.I.B. NORDICCh ISCh ISJCh RW-23-24-25 ISJW-23 ISW-24 Elixir D’Amour-Bl The Enchanting Dreamcatchers
Íslenskur öldungameistari:
- ISJCh ISVetCh RVW-25 Eldlilju Kastani Coffee
Norðurlanda-öldungameistari:
- C.I.B.-V NORDICVCh ISCh ISVetCh RW-17-21 VOLVW-25 ISVW-24 Ljúflings Merlin Logi
Alþjóðlegur öldungameistari:
- C.I.B.-V NORDICVCh ISCh ISVetCh RW-17-21 VOLVW-25 ISVW-24 Ljúflings Merlin Logi
Reykjavík Winner (RW-25, RJW-25 og RVW-25):
- C.I.B. NORDICCh ISCh ISJCh RW-24-25 VOLW-25 ISW-23-24-25 Bonitos Companeros Mr. Spock
- C.I.B. NORDICCh ISCh ISJCh RW-23-24-25 ISJW-23 ISW-24 Elixir D’Amour-Bl The Enchanting Dreamcatchers
- ISJCh RJW-25 Hafnarfjalls Karlottu Ísabella
- ISJCh ISVetCh RVW-25 Eldlilju Kastani Coffee
Volcano Winner (VOLW-25, VOLJW-25 og VOLVW-25)
- C.I.B. NORDICCh ISCh ISJCh RW-24-25 VOLW-25 ISW-23-24-25 Bonitos Companeros Mr. Spock
- VOLW-25 Snjallar Hrafntinnu Viska
- NORDICJCh ISJCh VOLJW-25 ISJW-25 Bonitos Companeros Jailbreak
- ISJCh VOLJW-25 Esju Nætur Viktoría
- C.I.B.-V NORDICVCh ISCh ISVetCh RW-17-21 VOLVW-25 ISVW-24 Ljúflings Merlin Logi
- VOLVW-25 Eldlukku Salínu Sunshine Sera
Ísland Winner (ISW-25, ISJW-25, ISVW-25):
- C.I.B. NORDICCh ISCh ISJCh RW-24-25 VOLW-25 ISW-23-24-25 Bonitos Companeros Mr. Spock
- ISW-25 Snjallar Silfraða Sylgja
- NORDICJCh ISJCh VOLJW-25 ISJW-25 Bonitos Companeros Jailbreak
- ISJCh ISJW-25 Hafnarfjalls Elsu Emma
Stigahæstu hundar ársins
Á árinu voru samtals 9 sýningar sem töldu til stiga, þar af tvær deildarsýningar.
Fimm stigahæstu hundar ársins
- C.I.B. NORDICCh ISCh ISJCh RW-24-25 VOLW-25 ISW-23-24-25 Bonitos Companeros Mr. Spock – 80 stig
- NORDICCh ISCh ISJCh RW-23-24-25 ISJW-23 ISW-24 Elixir D’Amour-Bl The Enchanting Dreamcatchers – 66 stig
- ISCh ISJCh RW-23 ISJW-23 Eros The Enchanting Dreamcatchers – 33 stig
- VOLW-25 Snjallar Hrafntinnu Viska – 27 stig
- C.I.B. NORDICCh NOCh DKCh SECh ISCh C.I.B.-J Pecassa’s Mister Power Of Sprudle – 20 stig
Stigahæstu rakkar
- 1. C.I.B. NORDICCh ISCh ISJCh RW-24-25 VOLW-25 ISW-23-24-25 Bonitos Companeros Mr. Spock – 80 stig
- 2. ISCh ISJCh RW-23 ISJW-23 Eros The Enchanting Dreamcatchers – 33 stig
- 3. C.I.B. NORDICCh NOCH DKCH SECH ISCh C.I.B.-J Pecassa’s Mister Power Of Sprudle – 20 stig
- 4. NORDICJCh ISJCh VOLJW-25 ISJW-25 Bonitos Companeros Jailbreak – 16 stig
- 5. ISCh Navenda’s Charm of Diamonds – 11 stig
- 6. Gasekær’s Black Beautiful Gino – 6 stig
- 7. ISCh Hafnarfjalls Karlottu Tómas – 4 stig
- 8. C.I.B.-V NORDICVCh ISCh ISVetCh RW-17-21 VOLVW-25 ISVW-24 Ljúflings Merlin Logi – 3 stig
- 9. ISJW-24 Mjallar Garpur – 2 stig
- 10.-12. Esju Dare To Dream James Bond -1 stig
- 10.-12. Fiorintino My First – 1 stig
- 10.-12. Mjallar Geisli – 1 stig
Stigahæstu tíkur
- 1. NORDICCh ISCh ISJCh RW-23-24-25 ISJW-23 ISW-24 Elixir D’Amour-Bl The Enchanting Dreamcatchers – 66 stig
- 2. VOLW-25 Snjallar Hrafntinnu Viska – 27 stig
- 3. Mjallar Gná – 19 stig
- 4.-5. ISCh ISJCh Snjallar Kastaní Björt á brá – 12 stig
- 4.-5. Totally True Love Femme Fatale – 12 stig
- 6. Renesmee Des Precieuses Pierres – 9 stig
- 7. ISW-25 Snjallar Silfraða Sylgja – 8 stig
- 8.-9. ISJCh VOLJW-25 Esju Nætur Viktoría – 7 stig
- 8.-9. ISJCh RJW-25 Hafnarfjalls Karlottu Ísabella – 7 stig
- 10. Hafnarfjalls Karlottu Embla – 3 stig
- 11.-13. Eldeyjarlilju Jökla – 1 stig
- 11.-13. Mjallar Glóð Esja – 1 stig
- 11.-13. Sóldísar Amý Mandla – 1 stig
Stigahæstu ungliðar
- 1. ISJCh VOLJW-25 Esju Nætur Viktoría – 44 stig
- 2. NORDICJCh ISJCh VOLJW-25 ISJW-25 Bonitos Companeros Jailbreak – 37 stig
- 3. ISJCh RJW-25 Hafnarfjalls Karlottu Ísabella – 20 stig
- 4. ISJCh ISJW-25 Hafnarfjalls Elsu Emma – 7 stig
Stigahæstu öldungar
- 1. C.I.B.-V NORDICVCh ISCh ISVetCh RW-17-21 VOLVW-25 ISVW-24 Ljúflings Merlin Logi – 47 stig
- 2. ISJCh ISVetCh RVW-25 Eldlilju Kastani Coffee – 34 stig
- 3. VOLVW-25 Eldlukku Salínu Sunshine Sera – 7 stig
Stigahæstu ræktendur
- 1. Hafnarfjalls ræktun – Anna Þórðardóttir Bachmann: 42 stig
- 2. Mjallar ræktun – Arna Sif Kærnested: 33 stig
- 3. Esju ræktun – Svanhvít Dröfn Sæmundsdóttir: 19 stig
- 4. Snjallar ræktun – Steinunn Rán Helgadóttir: 13 stig
- 5.-6. Eldlukku ræktun – Svanborg S. Magnúsdóttir: 5 stig
- 5.-6. Eldeyjarlilju ræktun – Jón Grímsson: 5 stig
- 7.-8. Eldlilju ræktun – Þórunn Aldís Pétursdóttir: 4 stig
- 7.-8. Ljúflings ræktun – María Tómasdóttir: 4 stig
- 9. Brellu ræktun – Valka Jónsdóttir: 2 stig
- 10.-12. Korpu ræktun – Sigrún Bragadóttir: 1 stig
- 10.-12. Seljudals ræktun – Halldóra Bergsdóttir og Björn Angantýr Ingimarsson: 1 stig
- 10.-12. Sóldísar ræktun – Hafdís Lúðvíksdóttir: 1 stig
Sýningaþjálfanir
Deildin hélt yfir 20 sýningaþjálfanir þar sem allur ágóði rann beint til deildarinnar og er þetta aðal fjáröflun deildarinnar auk bingó sem haldið var í byrjun árs.
Viðburðir
Göngur
Göngunefnd var ekki starfandi á árinu en stjórn skipulagði eina göngu.
7. desember – Jólaganga í Hafnarfirði
Hvolpahittingar
Á árinu hélt deildin tvo hvolpahittinga, þann fyrri í mars og hinn í október og voru þeir báðir vel sóttir. Fóru þeir fram í húsnæði félagsins að Melabraut 17 í Hafnarfirði.
Vefsíðan cavalier.is
Nokkrir ræktendur auglýstu got sín á vefsíðu deildarinnar cavalier.is og styrktu deildina með því. Vottorð, listar yfir got og öldunga var uppfært reglulega eða þegar skráning hafði farið fram inni á Hundavef HRFÍ.
Lokaorð
Stjórn þakkar ánægjulegt afmælisár. Við viljum enn og aftur þakka Maríu Tómasdóttir fyrir aðkomu að ræktunarráði, Bergþóru Lindu og BH Hönnun fyrir allar auglýsingar fyrir deildina og þeim sem hafa komið að sýningaþjálfunum, auk allra sjálfboðaliða sem komið hafa að viðburðum ársins. Einnig þeim sem hafa í nafni deildarinnar aðstoðað við viðburði HRFÍ, þar á meðal aðkomu að sýningum félagsins og fleiri verkefna.
Stjórn vill einnig þakka þeim ræktendum sem auglýst hafa got á cavalier.is og í leiðinni styrkt deildina við að halda úti vefsíðunni. Stjórn þakkar fyrirtækjum og ræktendum sem styrkt hafa deildina á árinu, bæði í tengslum við deildarsýningu, verðlaun á sýningum og aðra viðburði ársins. Þess má geta að deildin hefur fengið til sín og endurnýtt fjölda bikara sem hafa nýst á árinu og þökkum við þær gjafir. Deildin þakkar einnig þeim fjölmörgu sem hafa mætt í sýningaþjálfanir og með því styrkt deildina.
Sérstakar þakkir fær þó okkar aðal styrktaraðili Dýrabær fyrir allan stuðninginn á árinu.
Í stjórn Cavalierdeildar HRFÍ
- Anna Þórðardóttir Bachmann
- Guðríður Vestars
- Sunna Gautadóttir
- Svanhvít Sæmundsdóttir
