
Aldursforseti tegundarinnar er Hlínar Plútó en hann er fæddur 8. júlí 2010 og var heiðraður á ársfundi deildarinnar þann 12. mars síðastliðinn, þá 15 ára og 8 mánaða. Foreldrar hans voru Russmic Jack Junior og Hlínar Dominique, eigandi Kristín Marksdóttir og ræktandi Edda Hlín Hallsdóttir. Plútó mætti með eigendum sínum og þau tóku á móti blómvendi og viðurkenningarskjali frá deildinni.