BOB og BOS ISCh ISJCh ISW-23 Bonitos Companeros Mr. Spock og Sóldísar Amý Mandla
Hundaræktarfélag Íslands hélt fyrstu alþjóðlegu sýningu ársins í reiðhöll Spretts í Kópavogi helgina 2.-3. mars. Cavalier var sýndur á sunnudeginum og dómari var Annukka Paloheimo frá Finnlandi, sem ræktaði sjálf tegundina um árabil. Skráðir voru 49 cavalier hundar en 4 forfölluðust. Einnig voru sýndir tveir ræktunarhópar.
Dýrabær gaf eignarbikara fyrir bestu hvolpa, besta ungliða, BOB og BOS, auk þátttökumedalía fyrir hvolpa. Deildin gaf rósettur fyrir fjögur efstu sætin í keppni um bestu tík og besta rakka.
BOB var ISCh ISJCh ISW-23 Bonitos Companeros Mr. Spock með alþjóðlegt meistarastig og náði hann einnig í 6 hunda úrtak í úrslitum tegundahóps 9. Þar sem hann er nú þegar íslenskur meistari gekk íslenska stigið niður til Navenda’s Charm of diamonds. BOS var Sóldísar Amý Mandla með íslenskt og alþjóðlegt meistarastig.
Besti ungliði var Eldeyjarlilju Bonnie Tyler og besti ungliðarakki NJrCH Pecassa’s James Bond. Bæði fengu þau íslenskt og alþjóðlegt ungliðameistarastig. James Bond hafði fengið tvö alþjóðleg ungliðameistarastig áður en hann kom til Íslands og verður því alþjóðlegur ungliðameistari eftir staðfestingu frá FCI.
Besti hvolpur 4-6 mánaða var Hafnarfjalls Birtu Linda. Besti hvolpur 6-9 mánaða var Seljudals Ósk og varð hún einnig fjórði besti hvolpur dagsins í úrslitum, sem er frábær árangur.
Besti ræktunarhópur var frá Eldlukku ræktun og náði hann einnig í topp 6 í úrslitum, flottur dagur hjá tegundinni okkar.
Skutuls Saxi með eiganda sínum Söru Hákonardóttur og Önnu Þ. Bachmann formanni deildarinnar
Aldursforseti tegundarinnar er Skutuls Saxi og var hann heiðraður á ársfundinum okkar þann 27. febrúar síðastliðinn. Saxi er fæddur 2. ágúst 2008 og er því orðinn 15 ára og 7 mánaða. Foreldrar hans voru þau Sjarmakots Figaró Freyr og Skutuls Daniela, eigandi hans er Sara Hákonardóttir og ræktandi Bjarney Sigurðardóttir. Við óskum fjölskyldu og ræktanda til hamingju með þennan hrausta öldung en hann mætti mjög sprækur að taka á móti viðurkenningu og vakti mikla lukku meðal fundargesta.
Ársfundur Cavalierdeildar HRFÍ haldinn 27. febrúar 2024 í húsnæði Hundaræktarfélags Íslands að Melabraut 17 í Hafnarfirði.
Árið 2023 gerðum við ýmislegt og stendur hæst deildarsýning og vel heppnaður hvolpahittingur.
Starf deildarinnar var í nokkrum blóma og fjöldi viðburða meiri en oft áður. Við héldum sérsýningu í maí, göngunefnd var með reglulegar göngur, fjölmennur hvolpahittingur var haldinn í september, við heiðruðum stigahæstu hunda og ræktendur ársins á undan og fórum saman út að borða eftir nokkrar sýningar. Tvær heilsufarsskoðanir voru á vegum deildarinnar, boðið var upp á sýnendanámskeið og hélt deildin á þriðja tug sýningaþjálfana. Auk þess hélt stjórn reglulega fundi. Einnig voru sendir út hóppóstar til hvolpakaupenda, ræktenda og rakkaeigenda á rakkalista.
Deildin færði Hundaræktarfélagi Íslands innflutningsgjöf við flutninga félagsins frá Síðumúla 32 á Melabraut 17.
Samið var við Dýrabæ um að vera aðal styrktaraðili deildarinnar árið 2023.
Í stjórn Cavalierdeildar HRFÍ sátu þetta árið: Anna Þórðardóttir Bachmann, Bergþóra Linda Húnadóttir, Sunna Gautadóttir og Svanhvít Sæmundsdóttir. Fríða Björk Elíasdóttir lét af stjórnarsetu á árinu.
BOB og BOS 3-6 mánaða: Hafnarfjalls Birtu Linda og Hafnarfjalls Birtu Mói BOB og BOS 6-9 mánaða: Mjallar Glanni og Mjallar Gná
Fyrsta sýning ársins fór fram laugardaginn 27. janúar en þá hélt HRFÍ hvolpasýningu í húsnæði félagsins í Hafnarfirði, með íslenskum dómurum og dómaranemum. Tæplega 160 hvolpar á aldrinum 3-9 mánaða voru skráðir til leiks og þar af voru flestir cavalier sem voru samtals 16.
Ágústa Pétursdóttir dæmdi cavalier og besti hvolpur tegundar 3-6 mánaða var Hafnarfjalls Birtu Linda, bestur af gagnstæðu kyni var bróðir hennar Hafnarfjalls Birtu Mói. Í eldri flokki 6-9 mánaða voru það einnig gotsystkini sem báru sigur úr býtum, Mjallar Glanni varð besti hvolpur tegundar og Mjallar Gná besta tík. Mjallar Glanni komst svo í 9 hvolpa úrtak í úrslitum dagsins. Dýrabær gaf verðlaunabikara og þátttökumedalíur.