Hér má sjá dagskrá og PM deildarsýningar. Húsið opnar kl. 8:30 báða dagana og sýning hefst kl. 9:00 á hvolpaflokkum. Þar næst koma rakkar, svo hádegishlé og tíkurnar eru áætlaðar kl. 12:00 (ekki fyrr). Hlökkum til að fagna dásamlegu tegundinni okkar með ykkur öllum, munum að ganga vel um húsið og sýna kurteisi í framkomu.
