Skráning verður opin fram á fimmtudagskvöld.


Smellið hér til að sjá fleiri myndir
Cavalierdeild HRFÍ hélt hvolpahitting fyrir hvolpa að eins árs aldri þann 13. september sl. Hittingurinn var haldinn í húsnæði HRFÍ og mættu rúmlega 60 hvolpar með um 100 eigendum sínum. Deildin bauð upp á grillaðar pylsur og gaf Dýrabær öllum hvolpum sem komu gjöf.
Stjórn deildarinnar þakkar öllum sem kíktu við og við hlökkum til að sjá ykkur á næstu viðburðum.
Nú styttist í hvolpahitting og hlökkum við til að eiga skemmtilega stund með ykkur. Við óskum eftir því að þátttakendur skrái sig á eftirfarandi link svo við fáum einhverja mynd á fjöldann: https://docs.google.com/forms/d/1npU70CO6iLfBOUQK39-koyPYc6lNfMSTPu-7Qh9YtNo/edit


Fimmtudagskvöldið 17. ágúst gengu 15 manns og 12 hundar saman góðan hring um Paradísardal. Þetta hafði verið fremur grár og blautur dagur framan af en það rættist heldur betur úr honum og við fengum dásamlegt veður í göngunni. Þökkum öllum fyrir samveruna og hlökkum til að sjá sem flesta á næstu viðburðum.

Hittumst kl. 19 fimmtudagskvöldið 17. ágúst á bílaplaninu bak við prentsmiðju Morgunblaðsins að Hádegismóum. Göngum saman hring fyrir ofan Rauðavatn og niður í Paradísardal. Hundarnir byrja í taumi en hægt er að sleppa þeim um leið og við komum upp á stíg rétt fyrir ofan bílastæðið.

Miðvikudagskvöldið 21. júní var haldin cavalierganga í Úlfarsárdal við Langavatn. 19 manns og 22 hundar mættu í blíðskaparveðri. Hundarnir nutu þess í botn að hlaupa um mela og móa og sumir sulluðu meira en aðrir í vatninu.

Um helgina var tvöföld sýning HRFÍ haldin á Víðistaðatúni í Hafnarfirði. Á sunnudaginn var alþjóðleg sýning með samtals 1030 skráðum hundum, þar af 60 cavalier en 8 mættu ekki. Einnig voru sýndir 3 ræktunarhópar. Dómari var Dimitrios Antonopoulos frá Svíþjóð.
Dýrabær gaf bikara fyrir BOB, BOS, besta hvolp og besta ungliða, auk þess sem allir hvolpar fengu þátttökumedalíur.
BOB og besti ungliði var Snjallar Kastaní Björt á brá með íslenskt og alþjóðlegt ungliðameistarastig og íslenskt meistarastig. Hún náði einnig 4. sæti í úrslitum um besta ungliða tegundahóps 9. Þetta var hennar annað íslenska ungliðameistarastig og hún því orðin ungliðameistari. Hún er hins vegar of ung fyrir alþjóðlega stigið, sem kom í hlut ISCh ISW-22 Eldlukku Frán Þulu Lukku sem var önnur besta tík. Þetta er fjórða stig Lukku sem verður alþjóðlegur meistari eftir staðfestingu frá FCI.
BOS og besti ungliðarakki var Eros The Enchanting Dreamcatchers, með íslenskt og alþjóðlegt ungliðameistarastig og íslenskt meistarastig, en er of ungur fyrir það alþjóðlega. Annar besti rakki, ISJCh ISW-22 ISJW-22 Eldlukku Ljúfi Bruno, hlaut því alþjóðlega meistarastigið.
Besti hvolpur 4-6 mánaða var Eldeyjarlilju Orri Óstöðvandi og besti hvolpur 6-9 mánaða Eldlukku Vetrar Snjór.
Besti ræktunarhópur tegundar var frá Eldlukku ræktun.
Nánari úrslit:
Lesa áfram Alþjóðleg sýning 11. júní 2023