5. stjórnarfundur 2023-2024

5. stjórnarfundur Cavalierdeildar HRFÍ 12. september 2023

Staðsetning: Melabraut 17

Mættar: Anna Þórðardóttir Bachmann, Bergþóra Linda Húnadóttir, Fríða Björk Elíasdóttir og Sunna Gautadóttir

Fundur settur 17:35

Afgreitt á milli funda:

  • Póstur sendur til HRFÍ og spurt um stöðu á rafrænum hjartavottorðum. Niðurstöður nýjustu vottorða eru nú komnar inn á hundavefinn. Vottorðin sjálf eru þó ekki inni nema með samþykki eiganda, þar sem á þeim eru persónulegar upplýsingar.
  • Upphaf á undirbúningi deildarsýningar sem áætlað er að halda í vor.
  • Hvolpahittingur undirbúinn.

Dagskrá:

  • Lokaskipulag fyrir hvolpahitting.
  • Hjartaskoðun frestast aðeins en verður haldin seinna í haust.
  • Þegar PM fyrir októbersýningu kemur þarf að kaupa hvolpapeninga og endurmerkja bikara sem deildin hefur fengið að gjöf.
  • Stefnt er að því að fara út að borða eftir sýningu 7. október.
  • Deildin hefur þegar pantað HRFÍ salinn fyrir sýningarþjálfun nóvembersýningar og einnig fyrir aðventukaffi.
  • Vegna fjölda deildarsýninga sem áætlaðar eru á næstu mánuðum hefur stjórn nú þegar hafið undirbúning á deildarsýningu Cavalierdeildar 2024.

Fundi slitið kl. 18.