8. stjórnarfundur 2025-2026

8. stjórnarfundur 2025-2026

26. janúar 2026 kl. 10:30

Staðsetning: Te & kaffi Smáralind

Mættar: Anna Þórðardóttir Bachmann, Guðríður Vestars, Sunna Gautadóttir og Svanhvít Sæmundsdóttir

Fundur settur kl. 10:50

Milli funda:

  • Pálínuboð og heiðrun sýningaársins 2025 fór fram miðvikudagskvöldið 14. janúar í húsnæði HRFÍ. Mæting var nokkuð góð og áttum við ánægjulega stund saman.
  • Smáhundakynning í Garðheimum helgina 24.-25. janúar fór vel fram. Mikil umferð af fólki á öllum aldri og cavalier vinsæll eins og vanalega.

Dagskrá fundar:

  1. MRI

Skynsamlegt að finna stofu í Berlín eða Hollandi til að lesa úr myndum, þar er komin góð reynsla og ræktendur t.d. í Danmörku hafa leitað þangað. Púðinn sem þarf fyrir myndatöku er nú þegar til á landinu. Dýralæknir þarf að vera á staðnum til að léttsvæfa hundana o.s.frv. og eru þær í Víðidalnum að vinna í undirbúningi með okkur.

  1. Sýningar

Fengum nýlega að gjöf góðan slatta af bikurum sem nýtast á næstu sýningum en deildin þiggur alltaf slíkar gjafir. Styttist í næstu sýningu 20.-22. febrúar og verður gaman að sjá hvort skráning í okkar tegund verður jafn góð og upp á síðkastið. Sýningaþálfun verður mánudagana 9. og 16. febrúar kl. 18. Kemur auglýsing og skráningarblað á næstu dögum. Undirbúningur fyrir deildarsýningar heldur áfram, búið að panta hótel fyrir dómara.

  1. Aðrir viðburðir

Stefnum á hópskoðun (hjartahlustun og DNA) í mars. Hugmynd að hafa svo í haust stóra skoðun og ná inn 100 hundum, athuga þá með styrk frá HRFÍ. Ársfundur verður 12. mars og hvolpahittingur 22. mars.

Fundi slitið kl. 12:00

Fundargerð ritaði Sunna Gautadóttir