9. stjórnarfundur 2025-2026
3. mars 2026 kl. 17:30
Staðsetning: Spíran Garðheimum
Mættar: Anna Þórðardóttir Bachmann, Guðríður Vestars, Sunna Gautadóttir og Svanhvít Sæmundsdóttir
Fundur settur kl. 17:40
Milli funda:
- Deildin hafði samband við Intuens með von um að fá að komast fljótlega í segulómtækið þar en því miður er það ekki lengur í boði. Stjórn deildarinnar ætlar að skoða aðra möguleika. Þiggjum allar ábendingar um lausnir en vonandi finnum við annað tæki sem við getum fengið aðgang að.
Dagskrá fundar
- Augnskoðun
Höfum tekið eftir aukningu í greiningum, CD og aukaaugnhár hefur þó alltaf verið frekar algengt en sem dæmi fóru 5 cavalier hundar í ræktunarbann vegna augnsjúkdóma árið 2025. Möguleg skýring er að dýralæknarnir sem augnskoða séu komnir með nákvæmari tæki.
Stjórn HRFÍ tók okkar tegund sem dæmi í fundargerð vegna þessarar aukningar og á að skoða þetta betur. Nú í febrúar fóru 17 cavalier hundar í augnskoðun og aðeins 4 af þeim voru án athugasemda. Þar voru þó nokkrir að koma í skoðun tvö og vitað um greiningar fyrir. Ýmsar pælingar hvort þetta liggur í ákveðnum línum, hvort meiri skyldleikaræktun hefur aukist eða hvað. Bendum á að það er varhugavert að reikna skyldleikaprósentu í gegnum Hundavefinn þar sem það eru mjög fáir ættliðir á bak við innfluttu hundana.
- Ársfundur deildarinnar
Undirbúningur skýrslu o.fl.
Ársfundur fer fram í húsnæði HRFÍ fimmtudagskvöldið 12. mars kl. 20:30.
- Farið yfir rakkalista
Nokkrir sem munu detta út af lista í sumar ef augnskoðun verður ekki endurnýjuð, stjórn deildarinnar mun senda áminningu á þá rakkaeigendur.
- Hópskoðun
Hópskoðun (hjartahlustun og DNA sýnataka) mun fara fram 23. mars. Minnum á að innskráningargjald fyrir Hundavefinn er innifalið í verði þegar um er að ræða hópskoðun á vegum deildarinnar.
- Deildarsýning
Skráning á tvöfalda deildarsýningu 18.-19. apríl er opin og er skráningarfrestur til 3. apríl kl. 13.
Hugmynd að fá aðila utan deildarinnar til að halda eina sýningaþjálfun.
Rætt um mögulega veitingastaði fyrir sunnudagskvöldið, starfsmenn sýninga og fleiri skipulagsatriði.
Fundi slitið kl. 19:10
Fundargerð ritaði Sunna Gautadóttir