1. stjórnarfundur 2026-2027
30. mars 2026 kl. 17:30
Staðsetning: Spíran Garðheimum
Mættar: Anna Þórðardóttir Bachmann, Bergþóra Linda Húnadóttir, Guðríður Vestars, Sunna Gautadóttir og Svanhvít Sæmundsdóttir
Fundur settur kl. 17:50
Dagskrá:
1. Stjórn skiptir með sér verkum
Farið yfir reglur stjórnar. Hundaræktarfélagið heldur námskeið fyrir stjórnarmenn deilda þann 29. apríl nk. og mun stjórn Cavalierdeildar sitja það námskeið.
- Formaður: Anna Þórðardóttir Bachmann
- Gjaldkeri: Svanhvít Sæmundsdóttir
- Ritari: Sunna Gautadóttir
- Meðstjórnendur: Bergþóra Linda Húnadóttir og Guðríður Vestars
2. Nefndir
- Ræktunarráð: Stjórn ásamt Maríu Tómasdóttur
- Göngunefnd: Hefur ekki borið árangur að stofna sérstaka göngunefnd síðustu ár en stjórn mun skipuleggja næstu göngu með hækkandi sól.
- Sýninganefnd: Stjórn en þiggjum alla aðstoð við uppsetningu og niðursetningu deildarsýningar.
3. Farið yfir komandi viðburði
Þarf að gera auglýsingar fyrir sýningaþjálfanir sem fyrst. Verðum með sér þjálfun fyrir hvolpasýningu þann 8. apríl og þjálfanir fyrir deildarsýninguna okkar 7. og 14. apríl, þá einnig fyrir unga sýnendur.
Hópskoðun sem átti að vera 23. mars sl. frestaðist vegna veðurs og verður fundin ný tímasetning.
4. Deildarsýning
Farið yfir tékklista og hvað á eftir að græja.
Ætlum út að borða með dómurum eftir deildarsýningu sunnudagsins og varð veitingastaðurinn Fiskfélagið fyrir valinu en við fengum gott tilboð í hópmatseðil þar. Vonumst til að fá sem flest með okkur en auglýsing með matseðli og skráningu kemur inn þegar nær dregur. Dómurunum verður boðið í FlyOver Iceland fyrir matinn.
Enn er ekki komin full skráning á sýningarnar og skráningarfrestur er til föstudagsins 3. apríl kl. 13.
Fundi slitið kl. 18:50
Fundargerð ritaði Sunna Gautadóttir