Átaksverkefni í hjartaskoðun! Nú er Cavalierdeildin með stórt markmið um að ná 100 hundum í hjartaskoðun og þar með áherslu á þá sem eru 5 ára og eldri. Markmiðið er að fá betri sýn á stöðu stofnsins og afar mikilvægt að fá inn sem breiðastan hóp af hundum, ekki bara ræktunardýr. Við biðjum ræktendur sérstaklega að hvetja sína hvolpakaupendur sem eiga hunda 5 ára og eldri að mæta í þessa skoðun.
