4. stjórnarfundur 2026-2027
27. ágúst 2026 kl. 17:30
Staðsetning: Spíran Garðheimum
Mættar: Anna Þórðardóttir Bachmann, Bergþóra Linda Húnadóttir, Guðríður Vestars, Sunna Gautadóttir og Svanhvít Sæmundsdóttir
Fundur settur kl. 17:50
Milli funda:
Tókum þátt í dómaraprófi sem Anna Guðjónsdóttir þreytti í tegundinni þann 5. ágúst, deildin óskar henni til hamingju með prófið.
- Úrslit ágústsýninga
Farið yfir niðurstöður á tvöfaldri sýningu 8.-9. ágúst. Eignuðumst nýjan alþjóðlegan meistara, Norðurlanda-ungliðameistara og íslenskan öldungameistara. Mjög lítið var um forföll á þessum sýningum eða aðeins einn á laugardegi og tveir á sunnudegi. Ánægja með dómara helgarinnar (Per Lundström og Michael Leonard) sem voru báðir kurteisir og þægilegir í framkomu.
- Augnskoðun
Farið yfir niðurstöður augnskoðunar sem fram fór 20.-22. ágúst. 10 cavalier hundar voru skoðaðir í þetta sinn en aðeins tveir voru án athugasemda. Aðrir voru ýmist með Cornea Dystrofi og/eða Distichiasis/Ektopiske Cillier (aukaaugnhár), einn greindist með Retinal Dysplasi Geografisk, tveir með Lacrimal punctum atresia/micropunctum og einn með Kataract Cortical auk gruns um Keratoconjunctivitis sicca.
- Sýningaþjálfun í september
Verðum með sýningaþjálfun 15. og 22. september á Melabrautinni og búið að opna fyrir skráningu. Minnum á að þessi þjálfun er okkar aðal fjáröflun og deildin getur ekki haldið sýningar og aðra viðburði nema hún gangi vel. Hvetjum ræktendur til að beina sínum hvolpakaupendum sem stefna á að sýna, í þjálfun á vegum deildarinnar.
- Hóphjartaskoðun í október
Undirbúningur heldur áfram.
- Rakkalisti og heilsufarskröfur
Nokkrir á listanum sem ekki hafa endurnýjað hjartavottorð lengi. Við minnum á að æskilegt er að öll ræktunardýr séu hjartaskoðuð a.m.k. einu sinni á ári (þar til þau greinast með murr) til að hægt sé að fylgjast með stöðu stofnsins.
- Listi yfir innflutta hunda yfirfarinn
Farið yfir þá hunda sem fluttir hafa verið inn síðustu ár og hverjir hafa nú þegar verið notaðir í ræktun. Mikil fjölgun í innflutningi og hafa verið fluttir inn 29 hundar frá árinu 2020.
- Skráningar á vottorðum / Hundavefur og cavalier.is
Getur verið misræmi í skráningum þegar vottorð skila sér seint inn á Hundavefinn og mikil handavinna að yfirfara. Deildin hefur ekki verið að fá vottorðin á pappír frá HRFÍ eins og var áður og viljum við að það verði endurskoðað.
- Byrjun undirbúnings á deildarsýningu 2027
Stefnum á deildarsýningu næsta vor eins og síðustu ár og erum að byrja að skoða hugsanlega dagsetningu. Útlit fyrir að við getum ekki haldið nema einfalda sýningu í þetta sinn miðað við fjárhagsstöðu deildarinnar núna, m.a. vegna minnkaðrar þátttöku í sýningaþjálfunum.
Fundi slitið kl. 19:15
Fundargerð ritaði Sunna Gautadóttir