Flokkaskipt greinasafn: Heilsa

Ganga um Seltjarnarnes

Sunnudaginn 12. febrúar hittist þessi fíni hópur við Gróttu Seltjarnarnesi. Gengið var meðfram ströndinni og kringum golfvöllinn. Fengum hressandi veður sem telst gott miðað við það sem hefur verið í boði undanfarna daga. Að vanda vöktu fallegu hundarnir okkar athygli vegfarenda. Þökkum kærlega fyrir góða göngu og hlökkum til að hitta ykkur í næstu göngu sem áætluð er þann 12. mars í Grafarvogi.

Heiðrun

Síðastliðið fimmtudagskvöld 9. febrúar fórum við saman út að borða á vetingastaðnum 20&Sjö Mathús, til þess að heiðra stigahæstu hunda og ræktendur síðasta árs. Við þökkum öllum sem sáu sér fært að mæta fyrir frábæra samverustund og sérstakar þakkir fær Dýrabær fyrir veglegar gjafir til vinningshafa.

Stigahæsti hundur ársins var ISCH ISW-22 Eldlukku Frán Þulu Lukka
Eigandi Steinunn Rán Helgadóttir, ræktandi Svanborg S. Magnúsdóttir
Lesa áfram Heiðrun

Aðstoð á Winter Wonderland, Ísland Winner sýningu HRFÍ 26. og 27. nóv.

HRFÍ leitar eftir sjálfboðaliðum í ýmis verkefni yfir þessa helgi.

Sjálfboðaliðar frá okkar deild hafa verið duglegir að taka að sér verkefni og vonum við að svo verði einnig nú enda er sagt að margar hendur vinna létt verk.

Það geta allir aðstoðað og þurfa ekkert að vera með hund á sýningunni. Bara hafa áhuga og gaman að því að umgangast hunda og fólk og vilja gleðja.

Hérna er skjal til að skrá sig.

Uppsetning og niðurrif sýningar

Aðstoð á sýningu

Hlökkum til að sjá ykkur á sýningunni !

Fóðrun hunda.

Þú getur gefið hundinum þínum að borða einu sinni eða tvisvar á dag. Best er að gera það tvisvar á dag með 8-12 klukkustunda millibili. Ef þú ert að gefa mat tvisvar á dag, skaltu skipta upp ráðlögðu sólahringsmagni sem gefið er upp á umbúðunum því annars  ertu að gefa tvöfalt það sem hundurinn þarf. Mikilvægt er að hafa alltaf óheftan aðgang að fersku vatni.

Eldri hundum ætti að gefa aðeins minna magn en upp er gefið fyrir fullorðna hunda.

Verðlaun/aukabiti ætti ekki að vera meira en 10 prósent af heildar hitaeiningainntöku dagsins og þarf að draga það frá því sólahringsmagni  sem hundurinn fær.

Hundar sem eru á hráfæði eða heimaelduðu ættu á hverjum sólahring að þurfa magn sem svarar til 2-3 % af heildarþyngd þeirra, en ef verið er að megra þá, af æskilegri þyngd eftir megrun.

Offitujafnan er í raun mjög einföld. Hundar sem neyta fleiri hitaeininga en þeir brenna þyngjast. Svo til þess að léttast…

Lesa áfram Fóðrun hunda.