2. stjórnarfundur 2024-2025

2. stjórnarfundur 2024-2025

2. maí 2024 kl. 17:00

Staðsetning: Spíran Garðheimum

Mættar: Anna Þórðardóttir Bachmann, Guðríður Vestars, Sunna Gautadóttir og Svanhvít Sæmundsdóttir

Fjarverandi: Bergþóra Linda Húnadóttir

Fundur settur 17:15

Afgreitt á milli funda:

  • Hópskoðun deildarinnar fór fram þann 10. apríl þar sem bæði var boðið upp á hjartaskoðun og DNA sýnatöku. Gefin voru út hjartavottorð fyrir 15 hunda, 12 voru fríir en þrír greindust með murr. Á aldrinum 2-5 ára voru 8 hundar, allir fríir. Þrír hundar á aldrinum 5-6 ára, tveir fríir en einn með gráðu 1-2. Tveir hundar á aldrinum 6-7 ára, annar frír en hinn með gráðu 2. Á aldrinum 8-12 ára voru svo tveir hundar, annar frír en hinn með gráðu 5-6. Deildin minnir á mikilvægi þess að taka hjartavottorð árlega til að hægt sé að fylgjast með stöðu tegundarinnar og skiptir þar miklu máli að fá ekki eingöngu inn ræktunardýr, því þá fáum við ekki marktæka mynd af stofninum.

  • Styrktaraðili: Samningur við Dýrabæ var endurnýjaður fyrir starfsárið 2024-2025.
  • Framkvæmd deildarsýningar sem fram fór 20. apríl síðastliðinn. Judith Echazarra dómari var mjög ánægð með ferðina til Íslands, uppsetningu sýningar og góðan anda á meðan á henni stóð. Eftir sýningu sendi hún okkur sína punkta og ráð varðandi hvað við getum gert betur í ræktun og hefur sá pistill verið birtur á vefsíðu deildarinnar og Facebook síðum. 
  • Skönnun fyrir holnæmu: Höfum fengið jákvæð viðbrögð frá starfsmönnum Intuens segulómrannsóknarstöð og dýralæknum hér á landi varðandi hópskoðun. Næsta skref er að skipuleggja hvert best væri að senda niðurstöður til úrlestrar.
  • Tvöföld sýning HRFÍ í ágúst næstkomandi: Stjórn deildarinnar hefur sent sýningastjórn HRFÍ ósk um að það að Carsten Birk dæmi ekki cavalier. Hann dæmdi hér síðast 2019 og gaf þá aðeins eitt meistaraefni en 18 hundar voru sýndir.

Dagskrá fundar:

  1. Deildarsýning

Myndir frá deildarsýningunni eru væntanlegar frá ljósmyndara á næstu dögum. Þær verða settar á Facebook síðu deildarinnar í framhaldi.

  1. Hvolpahittingur

Deildin heldur hvolpahitting í húsnæði HRFÍ þann 15. maí næstkomandi og enn er hægt að skrá sig á viðburðinn, sem er ætlaður fyrir hvolpa á aldrinum 3-9 mánaða. Boðið verður upp á safa, kaffi og kleinur og hvolpar fá glaðning frá Dýrabæ.

  1. SM skönnun

Þurfum að senda dýralæknum hér á landi betri upplýsingar og fá jafnvel ráð hjá danska cavalierklúbbnum varðandi framkvæmd á hópskoðun.

  1. Afmælisár deildarinnar

Á næsta ári verður deildin 30 ára og því stórt afmælisár. Ýmsar pælingar varðandi hvernig við fögnum því en það verður auglýst þegar nær dregur.

  1. Aðrir viðburðir

Stefnt er á að halda feldhirðunámskeið á næstunni. Einnig verður sýningaþjálfun fyrir júnísýningu og mun hún fara fram úti.

  1. DNA niðurstöður

Gaman að sjá hvað mikið af DNA niðurstöðum hafa verið að skila sér inn til deildarinnar undanfarið, bæði fyrir EF/CC, MCADD o.fl. Niðurstöður EF/CC hafa hins vegar ekki verið að skila sér inn á Hundavefinn og þarf að bæta úr því. 

Fundi slitið kl. 18:20

Fundargerð ritaði Sunna Gautadóttir