1. stjórnarfundur 2025-2026

1. stjórnarfundur 2025-2026

25. febrúar 2025 kl. 19:00

Staðsetning: Húsnæði HRFÍ, Melabraut 17 í Hafnarfirði

Mættar: Anna Þórðardóttir Bachmann, Guðríður Vestars, Steinunn Rán Helgadóttir, Sunna Gautadóttir og Svanhvít Sæmundsdóttir

Fundur settur kl. 19:10

Dagskrá:

  1. Stjórn skiptir með sér verkum

Formaður: Anna Þórðardóttir Bachmann

Gjaldkeri: Svanhvít Sæmundsdóttir

Ritari: Sunna Gautadóttir

Meðstjórnendur: Guðríður Vestars og Steinunn Rán Helgadóttir

Bergþóra Linda Húnadóttir (BH hönnun) verður okkur innan handar í auglýsingagerð fyrir vefinn þó hún sé farin úr stjórn og erum við mjög þakklátar fyrir það.

Farið yfir reglur ræktunardeilda.

  1. Nefndir

Göngunefnd

Ekki verður starfandi sérstök göngunefnd en stjórnin tekur þann bolta og mun skipuleggja reglulegar göngur og aðra viðburði.

Sýninganefnd

Stjórn ásamt Bergþóru Lindu Húnadóttur. Deildin mun óska eftir sjálfboðaliðum í sérstökum tilvikum ef þarf, t.d. við niðurtöku á deildarsýningu.

  1. Styrktaraðili

Athugað verður hvort Dýrabær sé til í að styrkja okkur áfram og þá mögulega til tveggja ára.

  1. Viðburðir

Farið yfir bikaramál.

Hvolpahittingur verður 25. mars, auglýst nánar þegar nær dregur.

Deildin verður með sýningaþjálfun fyrir hvolpasýningu og deildarsýningu, verður auglýst á vefsíðu og Facebook.

Hópskoðun áætluð í apríl og október eins og síðasta ár, boðið upp á bæði hjartahlustun og DNA sýnatöku.

Deildarsýning: Næst á dagskrá að finna starfsfólk sýninga og þess háttar. Búið að panta rósettur.

  1. Ályktun ársfundar

Ályktun ársfundar var send formlega til stjórnar HRFÍ ásamt öðrum ársfundargögnum og mun stjórn fylgja þessu máli eftir.

Fundi slitið kl. 20:25

Fundargerð ritaði Sunna Gautadóttir