2. stjórnarfundur 2026-2027
11. maí 2026 kl. 17:30
Staðsetning: Spíran Garðheimum
Mættar: Anna Þórðardóttir Bachmann, Bergþóra Linda Húnadóttir, Guðríður Vestars, Sunna Gautadóttir og Svanhvít Sæmundsdóttir
Fundur settur kl. 17:45
Dagskrá:
1. Deildarsýning 18.-19. apríl sl.
Farið yfir niðurstöður. Mjög ólíkar sýningar á þann hátt að allir nema 3 fengu excellent á laugardeginum (dómari Viera Stloukalová frá Slóvakíu) en mun dreifðari einkunnagjöf á sunnudeginum (dómari Mark Sedgwick frá Bretlandi). Einnig fengu allir sem lentu í sætum í hverjum flokki á laugardeginum ck en á sunnudeginum voru mjög fá ck. Dómararnir voru þó sammála um margt í umsögnum og sætaröðun í flokkum oft svipuð.
Annars vel heppnuð sýning og við mjög ánægðar með störf dómara og starfsfólks. Þökkum öllum sem lögðu hönd á plóg kærlega fyrir. Viljum sérstaklega nefna að ljósmyndarar helgarinnar, Hildur Sif Pálsdóttir og Alex Andri Írisar, skiluðu af sér frábærum myndum.
Farið yfir kostnaðarliði sýningar miðað við fyrri ár til að sjá hvaða liðir hafa hækkað mest, allt hefur auðvitað hækkað slatta síðustu misseri.
2. Hópskoðun
Hópskoðun fór fram 28. apríl og voru þar tekin 13 hjartavottorð og 5 DNA sýni. Tveir greindust með murr gráðu 2, einn 6 ára og einn 8,3 ára. Ein tík 2,8 ára greindist með hnéskeljalos gráðu 1 öðru megin.
Næsta hópskoðun áætluð í október og stefnum þá á að ná inn 100 hundum frá 5 ára aldri. Þurfum að athuga með styrktaraðila o.fl. Ein hugmynd að kanna hvort innflutningsaðili Vetmedin hjartalyfsins sé til í að vera með okkur í þessu. Ábendingar um aðra styrktaraðila eru velkomnar.
3. Rakkalisti
Aðeins að bætast á rakkalistan undanfarið en einnig einhverjir sem hafa dottið út og fleiri sem detta út í sumar ef augnskoðun verður ekki endurnýjuð. Minnum á að útreikningur skyldleika í gegnum Hundavefinn er ekki nákvæmur, það vantar mikið á bak við marga af innfluttu hundunum í þeim gagnagrunni og getur munað töluverðu í skyldleikaprósentu þegar beðið er um útreiknaðan rakkalista frá deildinni. Erfðafræðingar mæla með að skyldleiki fari ekki yfir 6% á lágmark 5 ættliði en helst 10.
5. Námskeið stjórnarmanna á vegum HRFÍ
Þann 29. apríl sátu Bergþóra, Gurrý, Sunna og Svanhvít námskeið fyrir stjórnarmenn deilda á vegum HRFÍ, Anna var því miður ekki á landinu og komst því ekki. Ræddum lauslega hvað var farið yfir á námskeiðinu en það var mjög áhugavert. Fjallað var um ábyrgð og hlutverk stjórnar, uppsetningu stjórnarfunda, ritun fundargerða, framkvæmd ársfunda og reglur félagsins/deilda. Við teljum okkur fara eftir því sem farið var yfir.
6. Tvöföld sýning 13. og 14. júní nk.
Í næsta mánuði eða 13. og 14. júní fer fram tvöföld sýning HRFÍ á Víðistaðatúni í Hafnarfirði, skráningar frestur rennur út mánudaginn 18. maí kl. 15. Cavalierdeild stefnir á sýningarþjálfun 3. og 10. júní á Víðistaðatúni.
Viljum senda inn tillögu til sýningastjórnar að hvolpar og ungir sýnendur verði færðir á föstudagskvöld á tvöföldu sumarsýningunum. Bæði hvolpar og ungir sýnendur fengju þá bara eina sýningu í stað tveggja en í staðinn minnkar fjöldi hunda og sýnenda á laugardegi og sunnudegi, sem gefur meira pláss og styttir þá sýningardaga. Einnig er mikið álag fyrir unga hvolpa að þurfa að bíða á sýningarsvæðinu allan daginn í þeim tilfellum þar sem sýnendur eru með eldri hunda líka. Margir ungir sýnendur eru líka að sýna hunda í ræktunardómi og þurfa þá ekki að velja á milli ef keppni ungra lendir á sama tíma.
Fundi slitið kl. 19:20
Fundargerð ritaði Sunna Gautadóttir