3. stjórnarfundur 2026-2027

3. stjórnarfundur 2026-2027

22. júní 2026 kl. 17:00

Staðsetning: Spíran Garðheimum

Mættar: Anna Þórðardóttir Bachmann, Bergþóra Linda Húnadóttir, Guðríður Vestars, Sunna Gautadóttir og Svanhvít Sæmundsdóttir

Fundur settur kl. 17:25

Dagskrá:

  1. Úrslit á júnísýningum

Farið yfir úrslit tvöfaldrar sumarsýningar HRFÍ sem fram fór á Víðistaðatúni 13. og 14. júní. Aðeins færri skráningar í eldri flokkum núna en undanfarið, sérstaklega hjá rökkunum, en fjöldi hvolpa kom upp á móti. Aðeins 10 rakkar mættu á laugardeginum og 12 á sunnudeginum en langt er síðan svo fáir rakkar hafa verið.

  1. Niðurstöður augnskoðunar

Farið yfir niðurstöður augnskoðunar 28.-30. maí. Í heildina litið kom skoðunin vel út fyrir okkar tegund þar sem 19 af 26 fengu engar athugasemdir. Af greiningum var einn með “Pers. Pupilmembran (PPM): Iris, Cornea” sem hefur ekki komið upp hér áður. Nokkrir með aukaaugnhár (Distichiasis/Ektopiske Cillier) og/eða Cornea Dystrofi eins og oft áður, einn með Ektropion/Makroblefaron og einn með Lacrimal punctum atresia/micropunctum.

  1. 100 hunda hóphjartaskoðun í október

Erum að athuga með styrk hjá Vistor sem er umboðsaðili fyrir Vetmedin hjartalyfið. Ætlum einnig að hafa samband við stjórn HRFÍ og senda inn beiðni um styrk frá félaginu.

  1. Aðrir viðburðir

Sýningaþjálfanir fyrir ágústsýningar verða 22. júlí og og 5. ágúst. Skráningarfrestur á þær sýningar er mánudagur 29. júní á lægra gjaldi og 13. júlí kl. 15 á hærra gjaldi. Ætlum að skella í göngu miðvikudagskvöldið 8. júlí kl. 19, verður auglýst á vefsíðu og Facebook miðlum. Hvolpahittingur verður í haust, sunnudaginn 11. október.

Fundi slitið kl. 18:15

Fundargerð ritaði Sunna Gautadóttir