5. stjórnarfundur 2026-2027
29. september kl. 17:00
Staðsetning: Melabraut 17
Mættar: Anna Þórðardóttir Bachmann, Guðríður Vestars, Sunna Gautadóttir og Svanhvít Sæmundsdóttir
Fjarverandi: Bergþóra Linda Húnadóttir
Fundur settur kl. 17
Dagskrá:
- Stóra hóphjartaskoðunin 8. október
Gekk vel að fá inn hunda fyrstu dagana en það hefur hægt á skráningu og við þurfum fleiri. Hvetjum ræktendur enn og aftur til að hafa samband við sína hvolpakaupendur. Við viljum endilega fá inn sem flesta sem fæddir eru á árinu 2021 eða fyrr. Tímar verða sendir út í vikunni.
- Hvolpahittingur 11. október
Ákveðið hvaða veitingar við viljum vera með í hvolpahittingi.
Minnum á skráningu, skemmtileg samverustund og góð umhverfisþjálfun fyrir hvolpana.
- Sýningaþjálfun fyrir nóvembersýningu
Ætlum að prófa að vera með þrjú skipti í sýningaþjálfun fyrir síðustu sýningu ársins, 10. – 17. og 24. nóvember.
- Aðrir viðburðir
Stefnum á að halda bingó aftur á næsta ári og þá sennilega í janúar.
Fundi slitið kl. 18:40
Fundargerð ritaði Sunna Gautadóttir