
Sýningaþjálfun


Minnum á að skráningarfrestur er til 16. apríl. Dómari sýningarinnar er Joel Lantz frá Svíþjóð en hann ræktar cavalier undir ræktunarnafninu Cavanzas.




Loksins kom vorið og var mjög vel mætt í göngu deildarinnar um Elliðaárdalinn sunnudaginn 2. apríl. Samtals voru hundarnir 17 og 14 tvífætlingar fylgdu með. Fleiri voru úti að njóta veðurblíðunnar á sama tima og mættum við fullt af göngu-, hjóla- og hestafólki.
Næsta ganga er áætluð miðvikudagskvöldið 17. maí kl. 19 en þá ætlum við að ganga í kringum Reynisvatn og vonum til þess að sjá sem flesta.

Húrra! Takið laugardaginn 6. maí frá því þá ætlum við aldeilis að fagna tegundinni okkar, með glæsilegri deildarsýningu í nýja húsnæði HRFÍ í Hafnarfirði.

2. stjórnarfundur Cavalierdeildar HRFÍ 29. mars 2023
Staðsetning: Starengi 62
Mættar: Anna Þ Bachmann, Bergþóra Linda H, Fríða Björk Elíasdóttir, Sunna Gautadóttir og Svanhvít Sæmundsdóttir
Fundur settur: 17:15
Dagskrá:
Fundi slitið 18:15