Vegna takmarkanna við landamæri Íslands í tengslum við Covid 19 faraldurinn getur HRFÍ ekki staðið fyrir augnskoðun sem fyrirhuguð var 2.-5. september næstkomandi. Augnskoðuninni verður því frestað þar til aðstæður leyfa framkvæmd hennar. Þeir sem þegar hafa bókað tíma í augnskoðun hvort sem er á Akureyri eða í Reykjavík eiga áfram tímann og því forgang þegar hún verður haldin. Hægt er að bóka tíma í augnskoðun á skrifstofu félagsins.
Óskum eftir áhugasömu fólki í sýninganefnd HRFÍ

Ágúst ganga – Reynisvatn Grafarholti
https://www.facebook.com/events/332790977850798/
Cavalierdeild HRFí ætlar að halda göngur sínar samkvæmt áætlun á meðan þær eru innan þess ramma sem þríeykið setur um samkomur. Við hvetjum alla til að fylgja tveggja metra reglunni og hafa grímu ef menn vilja.
Lesa áfram Ágúst ganga – Reynisvatn Grafarholti8. Stjórnarfundur 2020
Hjartaskoðun á Akureyri
Á næstu dögum verður Helga Finnsdóttir dýralæknir stödd á Akureyri.

Kynning hjá HRFÍ á endurskoðun 10. Kafla
Í kvöld verðu kynning hjá HRFÍ á endurskoðun 10. Kafla ræktunar reglna ásamt skilyrðum um ræktunar einstakra hundakynja. Hvetjum ræktendur til að mæta.
Þeir sem eiga ekki heimangengt geta fylgst með streymi.
Endurskoðun á 10 kafla reglna um skráningu í ættbók.
Í kvöld fer fram kynning á endurskoðuðum 10. kafla í reglum um skráningu í ættbók. Kynningin hefst kl. 18 og fer fram á skrifstofu HRFÍ, Síðumúla 15. Streymt verður frá kynningunni og verður hægt að hlusta á hana hér: Cisco webex.
Hægt verður að smella á „Join“ þegar kynningin hefst með því að setja inn nafn og netfang, hægt að nota bæði í síma og tölvu.