Öfugur hnerri – hvað er það?

Stundum geta spenntir hundar allt í einu staðið kyrrir og byrja að gefa mjög hátt þefhljóð/gaggandi hljóð aftur og aftur eins og þeir séu að kafna og eigi erfitt með andardrátt.

Í cavalier heiminum er þetta þekkt sem „Cavalier Snort“ eða „Reverse sneeze“. Hér má finna myndband sem sýnir þessi einkenni hjá Cavalier. Þetta einkenni finnst hjá mörgum hundategundum en er þó algengara hjá hundategundum með styttra trýni.

Það sem gerist er að í stað þess að loft fari út um nef þegar hundurinn hnerrar þá fer loft snögglega inn í öndunarfærin í öfugum hnerra.

Ástæður eru yfirleitt einhver spenna eða breytingar í umhverfi hundsins sem kemur þessu af stað. Mikilvægt að eigendur haldi ró sinni því áhyggjur eiganda getur ýtt undir að öfugur hnerri aukist eða viðhaldist í lengri tíma.

Orsökina má rekja til þess að ílangur mjúkur gómur þeirra (sjá mynd: soft palate) er aðeins of langur miðað við munnlengdina þannig að afturhluti þessa mjúka hluta gómsins getur sogast inn í barkakýlið (sjá mynd: trachea) og hindrað eðlilegt loftflæði inn í barkann.

Hér er ágætt fræðslumyndband frá Dr. Karen Becker á ensku þar sem hún lýsir einkennum, orsökum og leiðir til að hjálpa hundinum til að losna við öfugan hnerra.

Hundarnir ná stundum að hætta þessu sjálfir en ef ekki þá eru nokkrar leiðir færar. Ein leiðin er að að beygja höfuð hundsins niður og loka fyrir nef hans og láta hann anda í gegnum munninn. Aðrar leiðir eru t.d. að blása í átt að nefi hundsins, nudda hálsinn eða jafnvel að opna munninn og ýta tungu hundsins niður … og þá stoppar öfugur hnerri. Eigandi þarf að finna út hvaða leið hentar best fyrir sinn hund til að stoppa öfugan hnerra fljótt og vel.

Hér má sjá myndir og myndband sem útskýra þessar leiðir (á ensku).

Heimild: https://www.cavalierhealth.org/brachycephalic.htm#Elongated_Soft_Palate