Allar færslur eftir Cavalier HRFI

Fundargerð ársfundar 2024

Ársfundur Cavalierdeildar HRFÍ 2024 fyrir árið 2023
Melabraut 17 Hafnarfirði
27. febrúar 2024 kl. 20.00

Setning ársfundar

Anna Þórðardóttir Bachmann, formaður deildarinnar, setti fundinn kl. 20:10 og bauð gesti velkomna. Lagt var til að fundarstjóri yrði Sigríður Margrét Jónsdóttir og var það samþykkt án athugasemda. Fundarstjóri kom í pontu og staðfesti lögmæti fundarins. 

Öldungur heiðraður

Aldursforseti deildarinnar er Skutuls Saxi en hann er fæddur 2. ágúst 2008 og er því 15 ára og 7 mánaða. Foreldrar hans voru þau Sjarmakots Figaró Freyr og Skutuls Daniela. Eigandi hans er Sara Hákonardóttir og ræktandi Bjarney Sigurðardóttir. Saxi mæti galvaskur á fundinn ásamt fjölskyldu sinni til að taka á móti viðurkenningu og blómum.

Lesa áfram Fundargerð ársfundar 2024 →

Stigahæstu ræktendur 2024

Á sýningaárinu voru samtals 7 sýningar sem töldu til stiga, þar af ein deildarsýning. Reglur um útreikning stiga má sjá hér.

  • 1. Hafnarfjalls ræktun – Anna Þórðardóttir Bachmann: 36 stig
  • 2. Eldlukku ræktun – Svanborg S. Magnúsdóttir: 21 stig
  • 3. Mjallar ræktun – Arna Sif Kærnested: 19 stig
  • 4. Eldeyjarlilju ræktun – Jón Grímsson: 9 stig
  • 5.-6. Ljúflings ræktun – María Tómasdóttir: 7 stig
  • 5.-6. Snjallar rækun – Steinunn Rán Helgadóttir: 7 stig
  • 7. Sóldísar ræktun – Hafdís Lúðvíksdóttir: 6 stig
  • 8. Þórshamrar ræktun – Fríða Björk Elíasdóttir: 5 stig
  • 9.-13. Björg Ársælsdóttir: 1 stig
  • 9.-13. Esju ræktun – Svanhvít Sæmundsdóttir: 1 stig
  • 9.-13. Korpu ræktun – Sigrún Bragadóttir: 1 stig
  • 9.-13. Seljudals ræktun – Halldóra Bergsdóttir og Björn Angantýr Ingimarsson: 1 stig
  • 9.-13. Skaga ræktun – Svava Ragnarsdóttir: 1 stig

Stigahæstu hundar 2024

C.I.B. NORDICCh ISCh ISJCh ISW-23-24 RW-24 Bonitos Companeros Mr. Spock
Mynd: Bergþóra Linda Húnadóttir

Á sýningaárinu voru samtals 7 sýningar sem töldu til stiga, þar af ein deildarsýning. Reglur um útreikning stiga má sjá hér.

Fimm stigahæstu hundar ársins

  1. C.I.B. NORDICCh ISCh ISJCh ISW-23-24 RW-24 Bonitos Companeros Mr. Spock – 77 stig
  2. NORDICCh ISCh ISJCh RW-23-24 ISJW-23 ISW-24 Elixir D’Amour-Bl The Enchanting Dreamcatchers – 37 stig
  3. ISCh ISJCh RW-23 ISJW-23 Eros The Enchanting Dreamcatchers – 32 stig
  4. ISCh ISJCh Snjallar Kastaní Björt á brá – 21 stig
  5. ISJCh Eldeyjarlilju Bonnie Tyler – 18 stig
Lesa áfram Stigahæstu hundar 2024 →