BOB og BOS 3-6 mán: Miðkots Askja og Brellu Sahara Þinur Dropi BOB og BOS 6-9 mán: Hafnarfjalls Birtu Bára og Hafnarfjalls Birtu Már
Föstudagskvöldið 3. október fór fram hvolpasýning HRFÍ í reiðhöllinni Víðidal þar sem rúmlega 160 hvolpar voru skráðir, en sýndir voru 6 cavalier hvolpar í yngri flokki og 3 í þeim eldri. Dómari var Mikael Nilsson frá Svíþjóð.
Besti hvolpur 3-6 mánaða var Miðkots Askja og bestur af gagnstæðu kyni Brellu Sahara Þinur Dropi. Besti hvolpur 6-9 mánaða var Hafnarfjalls Birtu Bára og besti rakki í sama aldursflokki Hafnarfjalls Birtu Már. Dýrabær gaf verðlaunabikara og þátttökumedalíur.
Nú um helgina 4.-5. október fer fram alþjóðleg sýning HRFÍ í reiðhöllinni í Víðidal. Cavalierdeild hefur sett upp kynningarbás í anddyrinu og verður básinn uppi alla helgina. Á sunnudeginum á milli kl. 10 og 14 verða einnig fulltrúar deildarinnar ásamt hundum á staðnum og því hægt að fá cavalierknús og svör við spurningum. Hvetjum öll áhugasöm um tegundina að kíkja við.
BOB og BOS – NORDICCh ISCh ISJCh RW-23-24-25 ISJW-23 ISW-24 Elixir D’Amour-Bl The Enchanting Dreamcatchers og VOLJW-25 Bonitos Companeros Jailbreak
Á sunnudeginum 17. ágúst fór fram alþjóðleg sýning á Víðistaðatúni í Hafnarfirði og voru sýndir 11 cavalier hvolpar, 13 rakkar, 23 tíkur og 3 ræktunarhópar. Dómari var Joakim Ohlsson frá Svíþjóð sem var áður cavalier ræktandi. Dýrabær gaf verðlaun og hvolpamedalíur.
Besti hundur tegundar varNORDICCh ISCh ISJCh RW-23-24-25 ISJW-23 ISW-24 Elixir D’Amour-Bl The Enchanting Dreamcatchers með alþjóðlegt meistarastig, íslenska stigið gekk niður til VOLW-25 Snjallar Hrafntinnu Visku. Elixir náði síðan þeim frábæra árangri að landa 2. sæti í sterkri keppni í grúppu 9.
Bestur af gagnstæðu kyni og einnig besti ungliði tegundar var VOLJW-25 Bonitos Companeros Jailbreak með íslenskt og alþjóðlegt ungliðameistarastig, einnig íslenskt meistarastig en er of ungur fyrir það alþjóðlega. Þetta var hans annað íslenska ungliðastig og verður hann því íslenskur ungliðameistari. Hann varð í 4. sæti í úrslitum um besta ungliða í grúppu 9. Besta ungliðatík var ISJCh VOLJW-25 Esju Nætur Viktoría með íslenskt og alþjóðlegt ungliðameistarastig.
Besti hvolpur 4-6 mánaða var Hafnarfjalls Birtu Bára og bestur af gagnstæðu kyni Hafnarfjalls Birtu Már. Besti hvolpur 6-9 mánaða var Miðkots Tía og besti rakki 6-9 mánaða Cavalion (FCI) Mr Wolf. Besti ræktunarhópur var frá Hafnarfjalls ræktun.