Allar færslur eftir Cavalier HRFI

Elliðaárdalur

Loksins kom vorið og var mjög vel mætt í göngu deildarinnar um Elliðaárdalinn sunnudaginn 2. apríl. Samtals voru hundarnir 17 og 14 tvífætlingar fylgdu með. Fleiri voru úti að njóta veðurblíðunnar á sama tima og mættum við fullt af göngu-, hjóla- og hestafólki.

Næsta ganga er áætluð miðvikudagskvöldið 17. maí kl. 19 en þá ætlum við að ganga í kringum Reynisvatn og vonum til þess að sjá sem flesta.

2. stjórnarfundur 2023-2024

2. stjórnarfundur Cavalierdeildar HRFÍ 29. mars 2023

Staðsetning: Starengi 62

Mættar: Anna Þ Bachmann, Bergþóra Linda H, Fríða Björk Elíasdóttir, Sunna Gautadóttir og Svanhvít Sæmundsdóttir

Fundur settur: 17:15

Dagskrá:

  • Gögn deildarinnar yfirfarin
  • Hjartaskoðun er á döfinni fljótlega og verður auglýst nánar síðar
  • Önur mál: Innflutningsgjöf HRFÍ rædd

Fundi slitið 18:15

Aprílganga

Næsta ganga verður sunnudaginn 2. apríl kl. 12.

Við hittumst á bílastæðinu fyrir neðan veg á móti Dýraspítalanum í Víðidal og göngum um efri hluta Elliðaárdals. Þetta er taumganga, við viljum benda á að flexítaumar eru ekki æskilegir í taumgöngur vegna slysahættu. Munið eftir skítapokum.

Viðburðurinn á Facebook

Stigahæstu ræktendur 2023

  • 1. Hafnarfjalls ræktun – Anna Þórðardóttir Bachmann: 31 stig
  • 2. Eldlukku ræktun – Svanborg S. Magnúsdóttir: 26 stig
  • 3. Litlu Giljár ræktun – Gerður Steinarrsdóttir: 14 stig
  • 4.-5. Þórshamrar ræktun – Fríða Björk Elíasdóttir: 10 stig
  • 4.-5. Snjallar ræktun – Steinunn Rán Helgadóttir: 10 stig
  • 6.-8. Brellu ræktun – Valka Jónsdóttir: 3 stig
  • 6.-8. Sóldísar ræktun – Hafdís Lúðvíksdóttir: 3 stig
  • 6.-8. Teresajo ræktun – Dominika Troscianko og Teresa Joanna Troscianko: 3 stig
  • 9. Mjallar ræktun – Arna Sif Kærnested: 2 stig
  • 10.-14. Eldeyjarlilju ræktun – Jón Grímsson: 1 stig
  • 10.-14. Esju ræktun – Svanhvít Dröfn Sæmundsdóttir: 1 stig
  • 10.-14. Hrísnes ræktun – Þuríður Hilmarsdóttir: 1 stig
  • 10.-14. Hvammsheiðar ræktun – Hrund E. Thorlacius: 1 stig
  • 10.-14. Miðkots ræktun – Sunna Gautadóttir: 1 stig

Heildarlista yfir stigahæstu ræktendur HRFÍ má sjá hér