- 1. Hafnarfjalls ræktun – Anna Þórðardóttir Bachmann: 31 stig
- 2. Eldlukku ræktun – Svanborg S. Magnúsdóttir: 26 stig
- 3. Litlu Giljár ræktun – Gerður Steinarrsdóttir: 14 stig
- 4.-5. Þórshamrar ræktun – Fríða Björk Elíasdóttir: 10 stig
- 4.-5. Snjallar ræktun – Steinunn Rán Helgadóttir: 10 stig
- 6.-8. Brellu ræktun – Valka Jónsdóttir: 3 stig
- 6.-8. Sóldísar ræktun – Hafdís Lúðvíksdóttir: 3 stig
- 6.-8. Teresajo ræktun – Dominika Troscianko og Teresa Joanna Troscianko: 3 stig
- 9. Mjallar ræktun – Arna Sif Kærnested: 2 stig
- 10.-14. Eldeyjarlilju ræktun – Jón Grímsson: 1 stig
- 10.-14. Esju ræktun – Svanhvít Dröfn Sæmundsdóttir: 1 stig
- 10.-14. Hrísnes ræktun – Þuríður Hilmarsdóttir: 1 stig
- 10.-14. Hvammsheiðar ræktun – Hrund E. Thorlacius: 1 stig
- 10.-14. Miðkots ræktun – Sunna Gautadóttir: 1 stig
Stigahæstu hundar 2023

Mynd: Ágúst Elí Ágústsson
Á sýningaárinu 2023 voru samtals 7 sýningar sem töldu til stiga, þar af ein deildarsýning.
Fimm stigahæstu hundar ársins
- ISJCh ISJW-23 RW-23 Eros The Enchanting Dreamcatchers – 39 stig
- ISCh ISJCh ISW-23 Bonitos Companeros Mr. Spock – 38 stig
- NORDICCh ISCh ISW-22-23 Eldlukku Frán Þulu Lukka – 31 stig
- ISJCh ISJW-23 RW-23 Elixir D’Amour-Bl The Enchanting Dreamcatchers – 25 stig
- ISJCh Snjallar Kastaní Björt á brá – 21 stig
Ganga um Grafarvog 12. mars
Stefnt er á göngu um Grafarvog sunnudaginn 12. mars kl. 12.
Hittumst við Grafarvogskirkju og göngum saman hringinn í kringum Grafarvog, rétt rúmlega 4 km. Ef veður er gott er hægt að bæta við hring upp að Keldum og þá er hringurinn 5 km. Þetta er taumganga, við viljum benda á að flexítaumar eru ekki æskilegir í taumgöngur vegna slysahættu. Munið eftir skítapokum.
Alþjóðleg Norðurljósasýning 5. mars 2023
Fyrsta sýning ársins var haldin nú um helgina í Samskipahöll Spretts í Kópavogi og skráðir voru samtals 1099 hundar. Rosa Agostini frá Ítalíu dæmdi cavalier á sunnudeginum, í þetta sinn voru skráðir 8 hvolpar, 18 rakkar og 21 tík og mættu allir nema einn rakki. Einnig voru sýndir þrír ræktunarhópar.
Deildin gaf eignarbikara fyrir besta hvolp, BOB og BOS, þátttökumedalíur í hvolpaflokki og rósettur fyrir fjóra bestu rakka og tíkur.

BOB og besti ungliði var ISJCh ISW-22 ISJW-22 Eldlukku Ljúfi Bruno með íslenskt meistarastig og bæði íslenskt og alþjóðlegt ungliðastig. Hann er enn of ungur fyrir alþjóðlega stigið sem kom því í hlut annars besta rakka, ISJCh Þórshamrar Þórs.
BOS var ISCh ISW-22 Eldlukku Frán Þulu Lukka með alþjóðlegt meistarastig en önnur besta tík, Snjallar Silfraða Sylgja, fékk íslenska meistarastigið.
Besta ungliðatík var Snjallar Kastaní Björt á brá með íslenskt og alþjóðlegt ungliðastig.
Besti hvolpur 6-9 mánaða var Elixir D’Amour-Bl The Enchanting Dreamcatchers sem náði svo þeim glæsilega árangri í stóra hringnum í lok dags að verða 3. besti hvolpur dagsins.
Besti ræktunarhópur var Hafnarfjalls ræktun sem náði einnig í 6 hópa úrtak í úrslitum dagsins.
Lesa áfram Alþjóðleg Norðurljósasýning 5. mars 20231. stjórnarfundur 2023-2024
1. stjórnarfundur Cavalierdeildar HRFÍ 22. febrúar 2023
Staðsetning: Spíran Garðheimum
Mættar: Anna Þórðardóttir Bachmann, Bergþóra Linda Húnadóttir, Fríða Björk Elíasdóttir, Sunna Gautadóttir og Svanhvít Sæmundsdóttir
Fundur settur: 17:35
Lesa áfram 1. stjórnarfundur 2023-2024Aðstoð á sýningu 3.-5. mars
HRFÍ leitar eftir sjálfboðaliðum í ýmis verkefni yfir þessa helgi.
Sjálfboðaliðar frá okkar deild hafa verið duglegir að taka að sér verkefni og vonum við að svo verði einnig nú, margar hendur vinna létt verk.
Hérna er skjöl til þess að skrá sig:
Heiðrun aldursforseta
Aldursforseti deildarinnar er Ljúflings Þytur en hann er fæddur 29. september 2007. Hann varð því 15 ára og 3 mánaða um áramótin síðustu. Foreldrar hans eru þau Lanola Pearl Dancer, fæddur í Englandi en innfluttir frá Noregi og Jörsi´s Stuegris, innflutt frá Noregi. Eigandi hans er Sigríður G. Guðmundsdóttir og ræktandi hans er María Tómasdóttir. Þytur var heiðraður á ársfundinum og tóku eigendur hans við blómum og viðurkenningu.

