Áramótin geta verið bestu vinunum okkkar erfið, en ýmislegt er hægt að gera til að gera þeim þennan tíma bærilegri. Eins er mikilvægt að passa að þeir komist ekki í flueldaleifar. Ungir hundar og hvolpar eru sérstaklega í hættu enda eru þeir mikið að naga hvers kyns hluti. Ekki eru mörg á frá því að ungur cavalier hvolpur dó eftir að hafa komist í flugeldaleifar.
Stjórn cavalierdeildarinnar vonar að þið hafið átt ánægjulegar stundir saman á jólunum og vill nota tækifærið og þakka fyrir ánægjulegar samverustundir á liðnu ári sem voru þó allt of fáar vegna covid. Vonandi verður næsta ár betra.
Jólahátíðin er tími gleði og samveru, en fyrir gæludýrin okkar getur þessi tími oft verið áskorun. Mikið breytt matarræði fyrir ferfætlingana okkar getur skapað þeim meiri vandamál en gleði. Hættur fyrir ferfætlinga og fjaðraða heimilismeðlimi geta líka leynst víða, t.d. jólaseríur, skreytingar með kertum og blómum, jólamatur og sælgæti. Þó að við sjáum ekki að pakki sem liggur fallega skreyttur undir jólatrénu innihaldi konfekt, þá er nokkuð víst að hundur heimilisins viti nákvæmlega hvað er að finna í pakkanum.
Eftirfarandi hlutir geta reynst gæludýrum varasamir:
Mynd: Gerður. Á myndina vantar hvolpinn Bassa og 3 einstaklinga.
Það var jólalegur hópur sem mætti í hina árlegu jólagöngu deildarinnar þann 11. desember og er óhætt að segja að hópurinn hafi vakið mikla athygli annara vegfarenda. Veðrið var ótrúleg gott miðað við veðurspá, þó svolítil hálka hafi verið á köflum. Alls mættu 18 manns og 14 ferfætlingar. Yngstu ferfætlingarnir aðeins tæpra 4 mánaða en sá elsti, Tröllatungu Valur Logi, sem ákvað að halda upp á 15 ára með því að mæta í jólagönguna. Hann varð 15 ára þann 8. Desember. Ótrúlega sprækur og fallegur öldungur.
BOB: ISCh RW-17-21 Ljúflings Merlin Logi BOS: ISCh ISJCh RW-17-21 Teresajo Sabrina Una Myndina tók Sunna Gautadóttir, ljósmyndari
Síðasta sýning ársins, Winter Wonderland sýningin, fór fram helgina 27. – 28. nóvember í glæsilegri reiðhölls Spretts í Kópavogi. Sýningin var NKU og Crufts qualification sýning. Þetta var stærsta sýning félagsins frá upphafi en alls voru 1.150 hundar skráðir. 50 cavalierar voru skráðir þar af 12 hvolpar. Svein Bjarne Helgesen frá Noregi dæmdi cavalierana.
BOB var ISCh RW-17-21 Ljúflings Merlin Logi og BOS ISCh ISJCh RW-17-21 Teresajo Sabrina Una, bæði fengu NCAC stig og Crufts qualification. Þetta var þriðja NCAC stig Teresajo Sabrinu Unu og hún því orðinn Nordic meistari. Rakkameistarastigið kom í hlut Bonitos Companeros Mr. Spock og tíkarmeistarastigið kom í hlut Hrísnes Lukku. Besti ungliði með ungliðameistarastig var Mjallar Týr. Einnig fékk Hafnarfjalls Unu Brák ungliðameistarastig. Besti öldungur var Eldlukku Salka. Besti hvolpur 4 – 6 mánaða var Koparlilju Erró og besti hvolpur 6 – 9 mánaða Snjallar Silfraða Sylgja.