Laugardagurinn 29. maí er Alþjóðlegi Cavalier King Charles Spaniel dagurinn. Í tilefni þess hefur göngunefndin ákveðið að vera með göngu þennan dag kl. 12 til að halda upp á daginn með Cavalier hundum og eigendum þeirra.
Í tilefni alþjóðlega Cavalier King Charles Spaniel dagsins þá ætlar Dýrabær að gefa öllum hundum sem mæta í gönguna smá glaðning í tilefni dagins. Göngunefndin vill þakka kærlega Dýrbæ fyrir þessa gjöf.
Við hittumst á bílastæðinu fyrir neðan veg á móti Dýraspítalanum í Víðdal og göngum um efri hluta Elliðaárdals. Þetta er taumganga. Við viljum benda á að flexítaumar eru ekki æskilegir í taumgöngur vegna slysahættu.
Munið eftir skítapokum og góða skapinu. Við hlökkum til að sjá ykkur öll.
Þrjár vaskar konur hafa boðið sig fram í göngunefnd Cavalierdeildarinnar og þökkum við þeim kærlega fyrir. Þær hafa þegar hafist handa við að skipuleggja göngur.
Þær hafa óskað eftir fleiri sjálfboðaliðum í þessa nefnd til að þetta verði bæði létt og skemmtilegt fyrir alla.
Hvetjum við áhugasama um að hafa samband t.d. með tölvupósti á cavalierdeildinhrfi@gmail.com eða hringja í Völku Jónsdóttur 616-1020.
Spennandi hvolpasýning er framundan hjá Hundaræktarfélagi Íslands.
Við hvetjum alla eigendur Cavalierhvolpa á aldrinum 3 – 9 mánaða að láta ekki þessa hvolpasýningu fram hjá sér fara. Þetta er tilvalið tækifæri til að umhverfisþjálfa hvolpinn sem og að þetta verður hin mesta skemmtun bæði fyrir eigendur og hvolpana sjálfa.
Gleðilegt sumar kæru unnendur Cavalier tegundarinnar. Hlökkum til sumarsins með skemmtilegum göngum og útivist með gleðigjöfunum okkar. Þökkum jafnframt fyrir samfylgina í vetur.