Flokkaskipt greinasafn: Fréttir

Frestum aðventukaffinu

Kæru vinir og félagar.

Þar sem deildin vill ekki vera þess völd að við þurfum að fresta jólunum með okkar ástvinum, ætlum við bara að fresta aðventukaffinu okkar þann 4. desember – því miður – út af dottlu.

Í staðinn ætlum við að hittast ofurhress í nýársfagnað með kökum og kaffi. Þar ætlum við líka að hafa tombólu með góðum vinningum og vonum við að félagsmenn fjölmenni.

Stjörnuspáin segir að árið 2022 sé einmitt árið okkar og lofar hún ljúfu og skemmtilegum degi.

Nánari upplýsingar um viðburðinn koma síðar.

Tannhirða hunda

Mynd: Svanhvít

Rétt eins og hjá mönnum er munnhirða hunda mikilvægur hluti af almennri vellíðan þeirra. Mikilvægt er að taka á tannhirðu hunda strax þar sem slæm munnheilsa getur tengst öðrum heilsufarsvandamálum og mögulega leitt til dauða. Þar fyrir utan sleikja hundar bæði sig sjálfa og oft eigendur sína og geta þannig flutt bakteríur. Fyrir utan hugsanleg tengsl munnheilsu og annarra sjúkdóma getur alvarlegur tannsjúkdómur verið mjög sársaukafullur en hundar geta fallið sársauka vel og hann getur leitt til breytinga á matarvenjum og hegðun. Heilbrigður munnur ætti að vera með ljósbleikt tannhold.

Lesa áfram Tannhirða hunda

Cavalierganga laugardag 20. nóvember kl 12:00.

Við hittumst við kirkjugarðinn í Hafnarfirði og keyrum í samfloti upp að Hvaleyrarvatni og þar fara allir hundar í taum. Gengið er upp að fellinu Stórhöfða sem er aðeins fyrir ofan vatnið og þar getum við sleppt hundunum lausum. Gangan er í kringum einn tíma en með stoppi getur hún orðið 2 tímar. Gott er að vera í góðum skóm og jafnvel með nesti og vatn fyrir hundana. Munið eftir skítapokum.

Ganga um Grafarvog

Mynd: Gunnhildur

Í gönguna núna mættu 9 einstaklingar og 9 hundar. Mjög gott veður og frábær ganga í fínasta félagsskap. Við hittumst við Grafarvogskirkju og gengum hring um voginn. Næsta ganga er áætluð laugardaginn 13. nóvember og verður þá gegnið um Hvaleyrarvatn- Stórhöfða.

Hlökkum til að sjá ykkur,
Göngunefnd Cavalierdeildar HRFÍ

Klóaklipping

Mynd: Sigrún Guðlaugardóttir

Langar klær geta valdið óþægindum og sársauka hjá hundinum þínum og komið í veg fyrir að hann gangi eða standi eðlilega. Mikilvægt er að skoða klær hundsins reglulega og sytta þær ef þarf til að halda fótunum heilbrigðum og án sársauka.

 Að fara með hundinn reglulega í gönguferðir á harða fleti eins og gangstéttir mun hjálpa til við að stytta klærnar en það er kannski ekki nóg til að halda þeim eins stuttum og þeir ættu að vera.

Lesa áfram Klóaklipping

Gangan um Gróttu

Það var fámennt en góðmennt í Seltjarnarnesgöngu deildarinnar á laugardaginn enda veðurspá alls ekki hagstæð mönnum og ferfætlingum. Vonandi verða veðurguðirnir okkur hliðhollari í næstu göngu þann 14. október, en þá hittumst við Grafarvogskirkju og göngum niður í voginn og göngum í kringum Grafarvog. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.Göngunefndin.