Allir borðhundar velkomnir

Sýningaþjálfun á vegum Cavalierdeildarinnar verður 16. ágúst og 18. ágúst kl. 18 – 19 á Víðistaðatúni. Þjálfari er Anna Dís Arnarsdóttir og kostar 1000 kr. skiptið
Munið eftir hundinum, sýningataum, nammi og skítapokum.
Allir borðhundar velkomnir

Sýningaþjálfun á vegum Cavalierdeildarinnar verður 16. ágúst og 18. ágúst kl. 18 – 19 á Víðistaðatúni. Þjálfari er Anna Dís Arnarsdóttir og kostar 1000 kr. skiptið
Munið eftir hundinum, sýningataum, nammi og skítapokum.
Við stefnum á næstu göngu í miðri viku eða 28. júlí næstkomandi kl. 17. Er það gert vegna sumarfría og ferðalaga. Vonandi verður hægt að fara en við tökum stöðuna þegar nær dregur. Endilega merkið við á facebook viðburðinn hvort þið stefnið á að koma.
Hittumst á bílastæðinu hjá Helgafelli og göngum létta göngu í kringum Helgafell. Munið eftir skítapokum og vatni fyrir hundana.
Hlökkum til að sjá sem flesta!
Fundur haldinn í húsakynnum HRFÍ, Síðumúla 15 þann 23. júní 2021 kl. 19.30
Mættar: Gerður Steinarrsdóttir, Svanhvít Sæmundsdóttir, Valka Jónsdóttir.
Dagskrá:
Þá er komið að næstu göngu deildarinnar.
Við ætlum að hittast sunnudaginn 27. júní kl. 12:00 við kirkjugarðinn í Hafnarfirði og ökum svo saman í samfloti í Heiðmörk. Þaðan göngum við að Búrfelli.
Þetta er taumganga en munið eftir skítapokum.
Hlökkum til að sjá sem flesta!

Fundur haldinn rafrænt á Teams 10. júní 2021 kl. 16.30
Mættar: Gerður Steinarrsdóttir, Svanhvít Sæmundsdóttir, Valka Jónsdóttir.
Dagskrá:
Hvolpasýning HRFÍ var haldin laugardaginn 12. júní sl. á Víðistaðatúni í Hafnarfirði. Samtals voru 270 hvolpar skráðir ásamt 14 ungum sýnendum. Af þessum fjölda voru 13 cavalier hvolpar sýndir. Dómari var Herdís Hallmarsdóttir.
Í ungum sýnendum tók sex Cavalierar þátt, tveir í eldri flokki ungra sýnenda og fjórir í flokki yngri sýnenda.
Cavalierdeildin stendur fyrir málstofu 14. júní nk. sem hefst kl. 18.00 undir yfirskriftinni „Hvert stefnum við“. Hún er opin öllum félagsmönnum deildarinnar. Málstofan verður haldin á skrifstofu HRFÍ, Síðumúla 15.
Með samtakamætti getum við náð því göfuga markmiði að gera deildina þá bestu innan HRFÍ, þar sem ræktun tegundarinnar er stunduð af alvöru og ábyrgð með heilsu og vellíðan dýranna og afkvæmanna fyrir brjósti. Deildin búi yfir haldgóðri þekkingu á heilsufari og sinni fræðsluskyldu sinni vel. Ekki má gleyma mikilvægu félagslegu hlutverki deildarinnar.
Lesa áfram Málstofa Cavalierdeildarinnar: Hvert stefnum við?Cavalierdeildin auglýsir hjartaskoðun í samstarfi við Helgu Finnsdóttur dýralækni.
Staðsetning: Akureyri 16. júní 2021.
Tímapantanir og nánari upplýsingar um nákvæmari staðsetningu og verð fást hjá Helgu í síma 553 7107 á viðtalstíma milli kl. 10.00 – 11.00 alla virka daga.
Markmiðið er að fá sem felsta hunda tveggja ára og eldri í hjartaskoðun.
Eigendur hunda sem þegar hafa greinst með míturmurr geta einnig notað þetta tækifæri til að fygljast með hvort ástand hundanna er svipað eða hefur versnað.
Ræktendur athugið að :
kær kveðja, stjórnin